störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að ræða áfengisgjald. Á sama tíma og kallað er eftir markvissum aðgerðum til stuðnings þeim atvinnugreinum sem hafa orðið fyrir þungu höggi boðar ríkisstjórnin skattahækkun í formi hækkunar áfengisgjalds. Hún er til höfuðs þeim sem minnst þurfa á því að halda. Veitingahús og barir sem róa nú lífróður fá þessa hækkun á sig af hálfu stjórnvalda. Eitthvert samhengi þarf að vera á milli veruleikans og aðgerða stjórnvalda og þessi hækkun er ekki nálægt því að ríma við þá stöðu sem veitingahúsin og öldurhúsin standa nú frammi fyrir. Rekstrarvandinn er augljós og mikill og það er alltaf að verða ljósara og ljósara að þetta erfiða efnahagsástandi lengist og lengist. Að ganga um miðborg Reykjavíkur, t.d. að kvöldi til, er annað en það var. Ljósin á veitingastöðunum eru slökkt, stólar standa uppi á borðum og rými til að skapa tekjur er að hverfa. Þess vegna þarf að gera allt sem hægt er til að sporna gegn rekstrarvanda, sporna gegn atvinnuleysi.
Við sjáum krítískar spár frá Vinnumálastofnun um þróun atvinnuleysis. Talað er um 11–12% um næstu áramót, 25.000 manns mögulega án vinnu. Við sjáum líka að atvinnuleysi á Íslandi hefur vaxið meira en á hinum Norðurlöndunum. Áfallið í ferðaþjónustunni og veitingahúsunum er langtum þyngra hér en þar. Og það er eins og það vanti upp á skilning á því að veitingahúsin eru vitaskuld hluti af þeirri keðju og því höggi sem ferðaþjónustan er að verða fyrir. Núna þegar við okkur blasir annar þungur vetur sem verður líklega erfiður, ekki bara hvað varðar sóttvarnir heldur líka efnahagslega og félagslega, þurfum við að gera allt sem við getum sameiginlega til að takast á við afleiðingarnar. Þá þurfa stjórnvöld að vera læs á aðstæður og bregðast við í samræmi. Eitt stórt atriði er að stjórnvöld forðist að bæta við útgjaldahlið fyrirtækja.