151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

störf þingsins.

[10:52]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnatíma í gærmorgun átti hæstv. dómsmálaráðherra orðastað við hv. þm. Þorstein Sæmundsson um málefni fólks sem hefur sótt um alþjóðlega vernd. Til að gera langa sögu stutta benti ráðherrann á að í löndum í kringum okkur er sums staðar sá háttur á að fólk sem bíður brottvísunar er vistað á afmörkuðum brottvísunarsvæðum á meðan það bíður brottvísunar. Það sem um ræðir er að sjálfsögðu ekkert annað en flóttamannabúðir eða jafnvel bara fangelsi og það kemur ekki til greina af hálfu þingflokks Vinstri grænna að setja slíkt á laggirnar. Eins og ráðherrann sagði þyrfti lagabreytingu til að slíkt yrði að raunveruleika og ég leyfi mér að fullyrða að slíkt frumvarp kæmist ekki í gegnum minn þingflokk, enda er slíkt mál hvergi að finna á þingmálaskrá ráðherrans og ekkert sem hún sagði gefur til kynna að það eigi að hrinda slíku í framkvæmd. Þótt þingmálaskrár séu oft uppfærðar með tilliti til stöðunnar í samfélaginu myndi afstaða Vinstri grænna ekki breytast ef slíkt mál birtist þar.

Umræðan sem hefur skapast í kjölfarið, að um sé að ræða stefnu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, á sér heldur enga stoð í raunveruleikanum enda segir í stjórnarsáttmálanum, með leyfi forseta:

„Aldrei hafa fleiri verið á flótta vegna stríðsátaka, ofsókna og umhverfisvár. Ísland mun leggja sitt af mörkum til lausnar á flóttamannavandanum og taka á móti fleiri flóttamönnum. Mannúðarsjónarmið og alþjóðlegar skuldbindingar verða lögð til grundvallar og áhersla á góða og skilvirka meðhöndlun umsókna um alþjóðlega vernd. Auk þess verður tryggð samfella í þjónustu og aðstoð við þá sem fá slíka vernd. Þverpólitískri þingmannanefnd verður falið að meta framkvæmd útlendingalaga og eftir atvikum endurskoða þau.“

Nú vill svo til að ég sit í téðri þingmannanefnd, eins og fulltrúar allra flokka á Alþingi. Ég hef áður sagt og segi enn að þar mun ég berjast fyrir því að fólk sem hingað sækir fái sanngjarna, réttláta og mannúðlega málsmeðferð. Ég vona að aðrir þingmenn hér inni, og sérstaklega þeir sem hafa tjáð sig um þessi orð dómsmálaráðherra, muni standa með mér í því, því að þetta er fráleit hugmynd og hún kemur ekki til greina.