151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

störf þingsins.

[10:54]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Heimsfaraldur kórónuveiru og smit á Íslandi eiga örugglega eftir að setja svip sinn á störf okkar á þinginu í vetur. Það skiptir máli að við sem hérna erum, líkt og allir aðrir í samfélaginu, fylgjum fyllstu varúðarreglum og við sjáum að þingstörfin taka mið af því. Akkúrat núna erum við að ræða fjárlög komandi árs og fjármálaáætlun næstu ára og það er eðlilegt að þættir eins og sú mikla efnahagslægð sem við erum að ganga í gegnum núna vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar séu ofarlega á dagskránni og ofarlega í umræðunni og setji mark sitt á hana.

Að sama skapi er líka mikilvægt að muna eftir því að þrátt fyrir heimsfaraldur kórónuveiru er ýmislegt sem gengur sinn vanagang og ýmislegt sem mun ekki breytast þrátt fyrir hana eða öllu heldur; það er ýmislegt annað sem við þurfum að breyta þrátt fyrir hana. Til að mynda munu breytingar af mannavöldum þegar kemur að loftslagsmálum ekkert hætta. Þess vegna skiptir máli að hugsa einnig um þau mál. Því miður er það svo að mörg ríki setja enn þá mikla fjármuni í heri sína og stríðsrekstur í stað þess að forgangsraða þeim í heilbrigðismálin eins og þyrfti að gera. Það er atriði sem við þurfum að vera meðvituð um og ræða hérna.

Ég er stolt af því að tilheyra landi sem hefur ekki her en getur þess í stað sett peninga í heilbrigðismálin.