151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[10:56]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Umræðunni verður þannig hagað að eftir framsögu hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra tala talsmenn þingflokka en að því loknu, eða kl. 14:00, munu fagráðherrar, hver á fætur öðrum, taka þátt í umræðum um einstaka málaflokka á sínu sviði. Verður það bæði í dag og á morgun. Gert er ráð fyrir að einn þingmaður tali frá hverjum flokki í hverjum málaflokki. Þó geta þingflokkar ákveðið að tveir þingmenn tali og þá aðeins í tvær mínútur hvor. Forseti vill geta þess að veittur verður rýmri andsvararéttur að lokinni framsöguræðu hæstv. ráðherra þannig að tryggt verði að fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka geti veitt andsvör við ræðu ráðherra.