fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Í fjármálaáætlun sjáum við áform ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Skoðum sex málefnasvið og látum tölurnar tala. Af hverju er verið að lækka framlög til nýsköpunar um 23% frá upphafi áætlunarinnar og til enda hennar? Er ekki búið að segja okkur að nýsköpun sé leiðin úr kreppunni? Af hverju er verið að lækka framlög til samgöngumála um 31% á næstu fimm árum þrátt fyrir mikla þörf um allt land? Af hverju er verið að lækka framlög til menningar, lista og íþrótta um 13% á næstu fimm árum? Er sá geiri ekki nægjanlega aðþrengdur? Af hverju er aukningin einungis rúm 4% í umhverfismál á næstu fimm árum? Áttu ekki umhverfismál að vera helsta forgangsmálið? Af hverju standa fjárframlög til framhaldsskóla í stað á næstu fimm árum? Átti ekki að vera menntasókn? Og að lokum: Hvernig stendur á því að það verður lækkun á fjárframlögum til hjúkrunar á næstu fimm árum þegar þjóðin er að eldast hratt? Þetta eru allt lykilmálefnasvið sem má lesa mjög skýrt í töflu í fjármálaáætlun að munu uppskera minni fjármuni eftir fimm ár en nú.