fjármálaáætlun 2021--2025.
Forseti. Þegar hæstv. ráðherra er búinn að segja að hann sé ekki að fara eftir lögum um opinber fjármál langar mig til að heyra hann útskýra hvaða áhrif það hefur á þingræðið og fjárveitingavaldið ef Alþingi fær ekki nægilega miklar upplýsingar frá framkvæmdarvaldinu til að taka upplýsta ákvörðun um fjárlög. Hvaða áhrif hefur það á lýðræðið ef kjósendur fá ekki að sjá rökstuðning ríkisstjórnarinnar fyrir því að eitt verkefni er mikilvægara en annað?
Það skal hafa í huga að lög um opinber fjármál eru samin af nákvæmlega sama ráðherra og er að reyna að fara ekki eftir þeim. Það er hægt að finna hræsni einhvers staðar í þeirri staðreynd ef einhverjir hafa áhuga á því. En ég hef hins vegar bara áhuga á að vita af hverju ráðherra fer ekki eftir lögunum. Allar spurningarnar í þessari umræðu hafa nefnilega snúist um að skortur er á upplýsingum. Fólk er að leita eftir svörum. Af hverju þetta en ekki hitt? Það er í lögunum að útvega eigi þau svör. Þá fyrst myndi umræðan verða allt önnur. Já, hún er að þróast í áttina af því að við erum að krefjast þess að farið sé eftir lögunum. Við erum ekki komin þangað enn þá og þess vegna erum við enn þá í ákveðnum pólitískum (Forseti hringir.) óþarfaspurningum. Þess vegna skiptir formið máli. Það er praktískt (Forseti hringir.) að ráðherra skili þessum upplýsingum.