151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:46]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni fjárlaganefndar, Willum Þór Þórssyni, fyrir ágætisræðu. Okkur í nefndinni er að sjálfsögðu hugleikið áhyggjuefni hinn mikli halli á ríkissjóði sem fram undan er og er nú þegar orðinn og hefur að sjálfsögðu margvísleg neikvæð áhrif á þjóðarbúið. Í áætluninni segir jafnframt að til þess að ná því markmiði að ná hallanum niður þurfi að auka tekjur ríkissjóðs um tæplega 38 milljarða kr. árlega á næstu árum. Þetta er nauðsynlegt svo að fjármál ríkisins verði aftur sjálfbær. Þetta eru náttúrlega gríðarlega háar upphæðir og engan veginn sjálfgefið að okkur takist að auka tekjurnar á hverju ári með þessum hætti, enda kemur ekkert fram hvernig ríkisstjórnin sér þetta fyrir sér. Ef hv. þingmaður gæti farið aðeins nánar yfir það. Ég held að það sé alveg ljóst að við náum ekki þeim hagvexti sem einn og sér myndi uppfylla þessar kröfur og þessa nauðsyn. Erum við, hv. þingmaður, að tala um skattahækkanir, erfiðan niðurskurð í málaflokkum sem varða velferð? Ef hv. þingmaður gæti farið aðeins nánar yfir það. (Forseti hringir.) Það vantar þarna skýringar á því hvernig ríkisstjórnin sér fyrir sér að ná þessu markmiði.