151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:55]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025. Mig langar í upphafi að segja að fram að þessu hefur góð staða ríkissjóðs verið nýtt til þess að sækja fram í heilbrigðis-, mennta- og umhverfismálum og miklar framfarir hafa orðið í tíð þessarar ríkisstjórnar, m.a. stórstígar framkvæmdir í samgöngumálum. Við getum nefnt sem dæmi að borgarlínuverkefnið er farið af stað, unnið er að tvöföldun vega frá höfuðborgarsvæðinu og margt fleira mætti nefna. En fyrst og fremst hefur verið fjárfest í samfélagslegum innviðum. Þá hafa einnig verið gerðar breytingar á tekjuskattskerfinu þannig að ráðstöfunartekjur þeirra sem hafa lægstu launin munu hækka mest. Þessu öllu er mikilvægt að halda til haga og þessi góða staða gerir það mögulegt að bregðast við hinu mikla efnahagsáfalli sem er að dynja á okkur núna vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, og svo auðvitað það að skuldastaða ríkissjóðs er góð. Þar hafa margar ríkisstjórnir komið að málum allt frá hruni til að koma okkur í þá stöðu sem við erum í núna, þ.e. fyrir faraldurinn.

Allt það sem ég nefndi hér áðan, breytingar á tekjuskattskerfinu og að standa vörð um félagslega innviði, erum við að gera án þess að fara í nokkurn niðurskurð í opinberri þjónustu og það er gríðarlega mikilvægt að muna eftir því og hafa það í huga þegar við ræðum bæði fjárlög og fjármálaáætlun næstu ára. En við vitum líka að við þurfum að ná viðspyrnu upp úr efnahagslægðinni og verið er að setja gríðarlega mikla fjármuni í fjárfestingar- og uppbyggingarátak á næstu þremur árum. Þetta er eitthvert kröftugasta hagstjórnarviðbragð sem ég held að við höfum nokkurn tíma séð og þetta er nauðsynlegt. Það er mikilvægt að bæði ríkisfjármálin og peningamálin gangi hér hönd í hönd við að létta undir með almenningi og fyrirtækjum.

En verstu áhrif þessa efnahagsáfalls eru auðvitað stóraukið atvinnuleysi. Störfum hefur því miður fækkað mjög mikið og ég held að við séum öll sammála um að atvinnuleysi sé eitthvert mesta böl sem kemur fyrir einstaklinga og samfélög. Þess vegna skiptir það gríðarlega miklu máli að hér verði til störf til framtíðar. En þrátt fyrir góða stöðu ríkissjóðs fyrir kórónuveirufaraldurinn er ljóst að hallarekstur mun á komandi árum verða töluverður og skuldahlutfall mun hækka. Það er í raun óumflýjanlegt. Það er þó hin rétta leið vegna þess að það er ríkissjóður sem ætlar að taka höggið eins og hann getur og hlífa þannig velferðarsamfélaginu okkar. En þetta er auðvitað vandasöm staða til framtíðar og það er eitt af því sem verið er að fjalla um í fjármálaáætluninni.

Það eru þrjár megináskoranir sem ég tel að bíði okkar sem samfélags á komandi árum. Í fyrsta lagi er þjóðin að eldast hratt og það mun verða þörf fyrir að heilbrigðisþjónustan vaxi í framtíðinni í takti við það óháð öðrum sveiflum og stærðum í hagkerfinu. En til þess að standa undir öflugu velferðarkerfi þurfum við öflugt hagkerfi. Í öðru lagi munu loftslagsbreytingarnar hellast enn frekar yfir okkur. Við munum því miður finna enn frekar fyrir þeim á komandi árum. Við vitum að loðna hefur ekki mælst í veiðanlegu magni tvö ár í röð og lífríkið í sjónum er að breytast og við þurfum að bregðast við því, bæði með því að Ísland nái markmiðum sínum í loftslagsmálum en svo þurfum við einnig sem samfélag að búa okkur undir þær loftslagsbreytingar sem því miður er óumflýjanlegt að verði, m.a. vegna þess hvernig komið hefur verið fram við jörðina okkar marga síðustu áratugi ef ekki hundruð ára. Í þriðja lagi er ójöfnuður ein afleiðing efnahagskreppunnar vegna Covid. Við vitum að þessi kreppa kemur mjög misjafnt niður á fólki og þó svo að kannski megi segja að við séum öll í sama storminum þegar kemur að veirunni þá erum við svo sannarlega ekki endilega á sama farrými í bátnum. Störfin sem hafa glatast í ferðaþjónustu eru aðallega úr neðri hluta tekjustigans og þar starfa margir innflytjendur og því er atvinnuleysi mun hærra á meðal þeirra. Það er eitthvað sem við þurfum að hafa í huga og taka tillit til í efnahagsviðbrögðum okkar. Jafnframt þurfum við að standa vörð um velferðarkerfin okkar. Og ekki bara standa vörð um þau, við þurfum líka að bæta þau og þróa þau áfram því að það þarf einnig að gerast í takt við breytt samfélag. Þetta verður áskorun næstu ára og hið opinbera verður að gera sitt til þess að hér skapist ekki frekara eða nýtt kerfisbundið óréttlæti.

Ég tek undir með þeim sem hafa talað um að við þurfum að vaxa út úr þessari kreppu. En ég vil bæta því við, vegna loftslagsmála, að við verðum að leggja áherslu á að vaxa út úr kreppunni með grænum formerkjum. Það er áskorun næstu ára.

Í fjármálaáætluninni er líka fjallað um, og mig langar að nota síðustu sekúndurnar mínar hér til að nefna það, velsældarhagkerfið. Það er eitt af því sem kemur fram í sáttmála ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, þ.e. að þar verði komið á þverpólitískum hópum um þróun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði. Slíkir hópar eiga að verða til þess að auðvelda stjórnvöldum að fylgjast með þróun og breytingum í samfélaginu og styðja við stefnumótun og ákvörðunartöku. Þetta held ég að verði tæki sem verði okkur gríðarlega mikilvægt inn í framtíðina þar sem við vitum að miklar áskoranir bíða okkar, að geta fylgst með því hvernig ólíkar breytur hafa ólík áhrif á ólíka hópa því að markmiðið hlýtur (Forseti hringir.) alltaf að vera að standa vörð um velsældina og þar með hag fólks út úr kreppunni.