151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[13:23]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður veit eins og ég að vextir á lánum hafa verið afar hagfelldir fyrir ríkissjóð á undanförnum misserum, mögulega neikvæðir. Þegar við höfum rætt það hér í þingsal eða í hv. fjárlaganefnd höfum við engar upplýsingar eða vísbendingar fengið um að breyting á þeim til hins verra sé í sjónmáli. Það má vera að það breytist en það er nokkuð sem ég var að nefna hér áðan, virðulegi forseti, að við þyrftum að fara rækilega yfir í vinnu okkar í fjárlaganefnd.

Í ræðu minni um fjárlagafrumvarpið í gær nefndi ég að 100 milljarðar til atvinnuleysisbóta á tveimur árum væru mikil útgjöld. Hv. þingmaður Samfylkingarinnar ýjaði að því að ég sæi eftir þeim peningum, en það er að sjálfsögðu ekki svo. Það er hluti af almannatryggingakerfi okkar að styðja fólk sem missir vinnuna. En mér finnst atvinnuleysistryggingar eða atvinnuleysisbætur alltaf vera fjármunir sem við ættum að horfa til þess að nýta betur til að stuðla að því að fjölga störfum og fyrir því eru þekkt fordæmi úr síðustu kreppu, hvernig við beittum þeim.

Hvort um vanmat sé að ræða get ég ekki svarað blákalt hér úr ræðustól. Við munum fara yfir þær forsendur í vinnu okkar í nefndinni um tímabundna lækkun tryggingagjalds eða hvernig við beitum tryggingagjaldinu í samhengi við það hvernig við eflum og fjölgum störfum, það má vel ræða. Ég hefði hins vegar líka áhuga á að ræða í því sambandi kerfisbreytingu á því hvernig við innheimtum tryggingagjaldið, koma á meira gagnsæi í því hvað það fjármagnar (Forseti hringir.) og hvernig við förum síðan með þá fjármögnun og til hvaða hluta hún rennur.