fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Hæstv. forsætisráðherra spyr hv. þingmenn Miðflokksins hvort það eigi að skilja atvinnulausa eftir úti á guð og gaddinum. Mér sýnist í fjárlagafrumvarpinu að það eigi nefnilega að gera það. Hún talar líka um að þessi kreppa sé öðruvísi en sú síðasta án þess að gera nánar grein fyrir því. En það er rétt. Þessi birtist í sögulegu atvinnuleysi og bítur verst tekjulægstu hópana á meðan við sem eru í vinnu og jafnvel mjög tekjuhá finnum ekki fyrir efnahagslegum áhrifum faraldursins og getum jafnvel hækkað kaupmátt okkar með lægri vöxtum. Fólk sem er nú að missa vinnuna í tugþúsunda tali horfir hins vegar framan í svartnættið.
Það hallar mest á ungt fólk, á konur og innflytjendur. Atvinnuleysi þeirra yngri er þrefalt meira en þeirra eldri og atvinnuleysi kvenna tvöfalt meira en atvinnuleysi karla. Það þarf að bregðast við þessu til að ójöfnuður aukist ekki gríðarlega. Það var því mjög sérkennilegt að hæstv. forsætisráðherra nefndi ekki einkenni þessarar kreppu sem er mikill ójöfnuður. Ég sé ekki nægileg áform í fjárlagafrumvarpinu eða fjármálaáætlun til að taka á honum. Ég spyr því einfaldlega: Finnst hæstv. forsætisráðherra virkilega ekki þurfa róttækari atvinnuskapandi aðgerðir, sérstaklega fyrir þessa hópa, ekki síst í ljósi þess að í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að atvinnuleysi lækki einungis um 1 prósentustig á næsta ári?
Og í öðru lagi: Getur hún í fáum orðum talið upp helstu rökin gegn því að hækka grunnatvinnuleysisbætur tímabundið a.m.k., þannig að fólk geti framfleytt sér og fjölskyldum sínum þegar það missir vinnuna, svona rétt á meðan þessi plága gengur yfir?