fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli mína á þessu. Ég ætla bara að viðurkenna það að hvað varðar Alþingi er ég ekki algerlega heima í áætluninni því að hún byggist auðvitað á áætlun Alþingis sjálfs. Ég held því að það sé mikilvægt að forsætisnefnd Alþingis fari yfir þessa áætlun, hvort hún meti hana viðunandi. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni að báðar þessar eftirlitsstofnanir eru mjög mikilvægar. Þær hafa í raun borið aukna ábyrgð á síðari árum, bæði Ríkisendurskoðun og umboðsmaður Alþingis, þannig að ég held að best færi á því að forsætisnefnd færi yfir það.
Hvað varðar stjórnarskrárvinnuna var hún lögð upp í upphafi þessa kjörtímabils. Mín sýn á það var að þeirri heildarendurskoðun yrði lokið á tveimur kjörtímabilum. Ekki er gert ráð fyrir fjármagni til þeirrar vinnu á næsta kjörtímabili, einfaldlega vegna þess að ég tel að það þurfi að koma í ljós hvernig okkur gengur að ljúka þeim áföngum sem við lögðum upp með á þessu fyrra kjörtímabili. Mun Alþingi takast á við og afgreiða, hvernig sem það fer, samþykkja eða hafna breytingum sem verða lagðar til á stjórnarskrá? Verður vettvangur til að halda því áfram eða verður að endurmeta stöðu þessa verkefnis og hvernig við höldum áfram með það? Stærstu fjármunirnir fóru m.a. í að virkja almenningssamráð í rökræðukönnun sem var að mínu mati mjög vel heppnað verkefni og gaf okkur mjög mikinn efnivið í það hvernig við viljum sjá ákveðna þætti í stjórnskipan. Það tók auðvitað ekki á öllum þáttum, en er eitthvað sem ég myndi vilja sjá nýtt meira við stefnumótun og ekki bara í tengslum við stjórnarskrárbundin málefni heldur ýmis önnur málefni sem gætu átt heima í slíku almenningssamráði. En ég lít svo á að það hangi kannski dálítið á því hvernig (Forseti hringir.) við tökum þetta verkefni áfram á komandi kjörtímabili.