fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegi forseti. Við höfum lagt upp úr því að vera í góðum samskiptum við allar lykilstofnanir ráðuneytisins, m.a. um fjárþörf. Við höfum hlustað eftir ákalli um auknar fjárheimildir þar sem það á við, innan þess ramma sem við höfum úr að spila. Þetta á við um Skattinn sem fær aukna fjármögnun til að ná enn betri árangri. En það sama á við um skattinn og tollgæsluna að báðir þessir liðir eru mjög háðir því að við nýtum okkur tæknina sem allra mest og með skilvirkum hætti, að við séum með réttu greiningartækin, t.d. til að sjá útslög. Það sem stingur í augu er skrýtið og vekur upp ástæðu til að kafa dýpra og taka hluti til skoðunar og alþjóðlegt samstarf skiptir auðvitað líka gríðarlega miklu máli.
Spurt er sérstaklega að því hvort ég hyggist leggja til frekari fjárheimildir eða fjárveitingar til þessara embætta. Ég er hér að mæla fyrir frumvarpinu eins og það hefur verið smíðað í mínu ráðuneyti og við höfum úr fjármunum að spila innan ákveðins ramma. Á þessum tímapunkti gerum við ekki ráð fyrir því að það komi viðbótartillögur. En ég er hins vegar algerlega sammála hv. þingmanni þegar hann leggur áherslu á mikilvægi þess starfs sem unnið er af tollinum. Bæði má það vera augljóst vegna tekjuöflunar sem leiðir af þessari starfsemi en ekkert síður til að gæta að því að lögum og reglum sé fylgt, þar með talið alþjóðasamningum sem við eigum aðild að. Öflug og skilvirk tollgæsla er í því samhengi liður í því að jafna samkeppni á milli þeirra sem starfa hér innan lands og annarra þjóða og skiptir gríðarlegu máli til að vernda framleiðslu og þjónustu hér innan lands og um leið neytendavernd og aðra slíka þætti sem hér eru undir.