fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Síðast þegar ég vissi var nú ekki komið til framkvæmda þetta átak t.d. til tómstunda barna, en látum það nú vera. Það er alveg rétt að sveitarfélög hafa mörg búið í haginn. Þetta er bara svo rosalegt högg. Það verður svo miklu lengra en við bjuggumst við. Það væri alveg ótrúlega vont ef sveitarfélögin þyrftu að spara sig út úr þessari kreppu, taka hana út í aukinni myglu í skólahúsnæði eða fresta mikilvægum framkvæmdum, svo ég tali nú ekki um að skera niður í nærþjónustunni.
En nú ætla ég að fara í allt annað. Nú ætla ég að fara í svolitla sagnfræði vegna þess að þegar ég var að undirbúa þetta áðan þá rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var sveitarstjórnarfulltrúi og hæstv. ráðherra var ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála. Þá fór ég á skemmtilegan fund hjá honum í ráðuneytinu varðandi sóknaráætlanirnar. Mér sýnist í fjármálaáætlun að það eigi að draga úr fé til sóknaráætlana. Þá viðraði hann þá snjöllu hugmynd að sóknaráætlanafé væri tengt upphæð veiðigjalda. Mér fannst þetta skemmtilegt og mikil framför vegna þess að þarna myndu sveitarfélögin um allt land hafa beinlínis hag af því að veiðigjöldin yrðu ekki lækkuð niður úr öllu valdi.
Þess vegna langar mig, fyrst ég hef tækifæri til að spyrja: Er hæstv. ráðherra enn þá að velta þessari snjöllu hugmynd fyrir sér eða er hann kominn með einhverja aðra?