151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[15:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Í fjármálaáætlun segir:

„Annað dæmi um kerfisumbætur sem gætu skilað markverðum framförum í efnahagsþróuninni væri að efla og samþætta sveitarstjórnarstigið með það að markmiði að það gæti bæði átt virkari hlutdeild í farsælli hagstjórn …“

Á sama tíma og þetta stendur í fjármálaáætlun keppist fjármálaráðherra við að útskýra hvernig sveitarstjórnarstigið sé sjálfstætt stjórnsýslustig. Á sama tíma reynir ríkisstjórnin að lögþvinga sveitarfélög til sameiningar sem ég tel að standist ekki stjórnarskrá og lög. Enn fremur vitum við að tekjustofnar sveitarfélaganna hafa ekki náð að standa undir kröfum um gæði þjónustu. Laun opinberra starfsmanna hjá sveitarfélögum eru lægri en laun opinberra starfsmanna hjá ríkinu.

Í fjármálaáætlun eru markmið og viðmið fyrir framtíðarþróun þau að hlutfall þeirra sem eru innan við 30 km frá heilsugæslustöð lækki ekki miðað við stöðuna 2018. Það á ekki að hækka heldur bara lækka ekki. Það er stöðnun, ekki í samræmi við það sem stendur þarna um að hagstjórn eigi að vera farsælli.

Miðað við þetta vil ég spyrja sveitarstjórnarráðherra hvernig hljóð og mynd fari eiginlega saman. Hvernig eru sveitarfélög sjálfstæð þegar sameiningar þeirra eru lögþvingaðar? Hvernig eru sveitarfélög sjálfstæð þegar tekjustofnar duga ekki fyrir lögbundnum verkefnum, tekjustofnar sem hafa verið ákveðnir af ríkisstjórnum sem hafa meirihlutavald á þingi? Miðað við að tveir ríkisstjórnarflokkanna hafa verið við völd meira og minna undanfarna áratugi, hvernig hafa þeir eiginlega trúverðugleika til að stuðla að framförum á sveitarstjórnarstiginu?

Við skulum hafa það algerlega á hreinu að núverandi ástand er í boði valdaflokkanna. Það er ekkert sem bendir til þess að þeir hafi neina framtíðarsýn í byggðamálum, um það hvernig við þurfum að huga alvarlega að uppbyggingu þjónustukjarna úti um allt land til þess að nauðsynleg og sjálfsögð þjónusta sé í alvörunni í boði á hverju atvinnusóknarsvæði. Það er nákvæmlega ekkert í þessari fjármálaáætlun sem sýnir slíkan vilja valdaflokkanna.