fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það má alveg til sanns vegar færa að það sé ekki sanngjarnt að ríkisstjórnin sé að lofa miklum framkvæmdum hér til 2024 og 2025, eins og hæstv. ráðherra segir, og áfram. En hæstv. ráðherra hefur samt í umræðum undanfarið talað mjög fjálglega um að það séu 900 milljarða framkvæmdir í pípunum á næstu 15 árum. Það er ekki bæði sleppt og haldið í þessum efnum, annaðhvort skulum við halda okkur við það sem er raunhæft til skemmri tíma eða horfa á stóru myndina. En það er þó ágætt að fyrir liggi að skilningur ríkisstjórnarinnar og sýn á nauðsyn samgöngufjárfestinga liggur einhvers staðar sem grunnur í námunda við upphæðina sem var til fjárfestinga árið 2017 annars vegar og verður aftur á árinu 2024 og 2025. Þetta verða þá ekki nema innspýtingar ef núverandi sýn ræður.
Hitt atriðið sem mig langaði til að koma inn á og spyrja hæstv. ráðherra út í er staða innanlandsflugsins. Nú hefur vissulega verið kynnt hin svokallaða loftbrú en að mínu mati er svo margt því til viðbótar sem gerir rekstur innanlandsflugsins hér um bil óbærilegan fyrir þá sem í þeim rekstri standa. Bara sem lítið dæmi þá var um leið og Covid-ástandið kom upp sleginn af allur kostnaður og gjaldtaka flugfélaga í Keflavík, eins og nokkur kostur var. En þetta fékkst ekki gagnvart innanlandsfluginu. Það eru eflaust einhver samskipti samgönguráðuneytis og Isavia sem ráða þar um en úr fjarska horft hefur verið alveg með ólíkindum að horfa til þess skilningsleysis sem rekstraraðilar og innanlandsflugið hefur unnið við hvað gjaldtöku varðar í gegnum þann heimsfaraldur sem við nú búum við.