störf þingsins.
Virðulegur forseti. Land er auðlind, landið sjálft, jarðvegurinn og gróðurinn sem þar þrífst. Auk þess geta fylgt önnur gæði eins og veiði- og vatnsréttindi. Land sem er hentugt til ræktunar og framleiðslu matvæla er takmörkuð auðlind sem okkur ber að varðveita. Meðferð og notkun alls lands skiptir okkur öll máli núna sem og komandi kynslóðir.
Miklir almannahagsmunir liggja undir í ákvörðunum um eignarhald og ákvörðunartöku um landnýtingu. Tæplega helmingur Íslands er þjóðlendur en annað land utan þéttbýlis skiptist í jarðir, eða rúmlega helmingur landsins. Eignarhald á því landi þarf að vera hjá fólki sem býr og starfar á Íslandi. Það er í raun ein stoð undir sjálfstæði þjóðarinnar til framtíðar.
Á þessu kjörtímabili hefur töluvert verið fjallað um jarðamál á Alþingi og í júní voru samþykktar lagabreytingar sem eru mjög til framfara. Þær breytingar fela m.a. í sér aukið gagnsæi í eignarhaldi og um kaupverð jarða, reglur um takmarkanir á stærð og fjölda jarða í eigu sama aðila og að landeignaskrá verði bætt þannig að hún nýtist sem stjórntæki. Ég tel þó að ganga þurfi miklu lengra en þar var gert í að tryggja eignarhald landsmanna á landi því að enn í dag hafa erlendir aðilar möguleika á að kaupa gott ræktunarland, loka það af og leggja niður búskap. Við verðum að tryggja að landbúnaðarlandi sé viðhaldið í ræktunarhæfu ástandi og koma á hvötum til búsetu í strjálbýli og nýsköpunar í landnýtingu.
Til að fylgja þessu eftir mun ég í vetur standa fyrir umræðu um jarðamál og landnýtingu og leggja fram mál sem fela í sér kvaðir um nýtingu og rekstur landbúnaðarlands.