störf þingsins.
Herra forseti. Samkvæmt orðræðu síðustu daga standa stjórnvöld sig ekki hvað nýsköpun og loftslagsmál varðar. Þá er gætt að því að minnast ekki á að framlög til nýsköpunar hafa hækkað um 25 milljarða eða 73% á kjörtímabilinu. Þá er þess heldur ekki getið að líkan sem tekur mið af þróun og samþykktum, fjármögnuðum aðgerðum ríkisstjórnar og Alþingis sýnir að við náum vel fram úr skuldbindingum okkar samkvæmt Parísarsamkomulaginu 2030. Við höfum þegar náð að minnka losun um 6,7 prósentustig af þeim 29 sem okkur er úthlutað samkvæmt samkomulagi við ESB og Noreg en við gætum náð allt að 40% samdrætti. Kolefnishlutleysi 2040 er raunhæft. Útgjöld til umhverfismála hafa aukist um 47% frá 2017. Borgarlína og loftslagsjákvæðar breytingar í samgöngum eru staðreynd og sömuleiðis grænvangur, samstarfsvettvangur fyrirtækja og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Hvatar til orkuskipta, einkum í samgöngum, eru til reiðu og skattahvatar til kolefnisbindingar sömuleiðis. Heildarskipulag sorpförgunar og endurvinnslu er í burðarliðnum. Má herða á þessum aðgerðum? Já. Og þarf þess? Já, heimsbyggðarinnar vegna. Draga stjórnvöld lappirnar í vinnu við einhvers konar iðjagrænt hringrásarhagkerfi sem fyrst á þessari öld? Nei, þau gera það ekki. Ég segi: Gagnrýni er þörf en þá studd málefnalegum rökum í stað stimpla eða frasakenndra fullyrðinga sem ganga jafnvel svo langt að því er haldið blákalt fram að Íslendingar séu enn að bæta í losun gróðurhúsagasa undir forystu ríkisstjórnarinnar. Þessi málflutningur er ekki góður. Ég fullyrði að stjórnvöld standa sig ágætlega, bæði hvað varðar nýsköpun og loftslagsmál.