störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nýlega hefur frést um nokkurn fjölda fólks, einhverja tugi a.m.k., sem selur aðgang að myndefni af sér á vefnum Onlyfans. Alls konar efni er þar að finna, þar á meðal kynferðislegt. Það er eiginlega óhugsandi að eitthvað af því efni sem þar er að finna myndi ekki teljast til kláms. Fólki sýnist sitt um klám, enda hugmyndir um kynlíf almennt fjölbreyttar, einstaklingsbundnar og persónulegar. Reyndar er skilgreiningin á klámi sjálf nokkurt bitbein. Í frjálsu lýðræðisríki er þó aðgangur að klámi, hvort sem fólki líkar betur eða verr, óbreytanleg staðreynd. Aukin kynfræðsla, sér í lagi um samskipti og mörk, er nauðsynlegur hluti af viðbrögðum okkar við þeirri stöðu því þótt við getum ekki dregið úr kláminu sjálfu þá getum við dregið úr neikvæðum áhrifum þess.
Það sem ég hef hins vegar ekki síður áhyggjur af er réttarstaða fólks sem birtir klámefni á síðum eins og Onlyfans af sjálfu sér. Nú vill svo til að klám er bannað á Íslandi, sem er að mér vitandi einsdæmi í frjálslyndum lýðræðisríkjum. Nú vill sjálfsagt einhver benda á að einhver hluti þess fólks sé í nauðungaraðstæðum, sé jafnvel misnotað og að sjálfsögðu er hætta á því. En á þá að refsa fólki fyrir að vera í þeim aðstæðum? Hvort sem fólk birtir af sér klámfengið efni af fúsum og frjálsum vilja eða vegna nauðungar eða misnotkunar, er það að refsa því aldrei réttlátt eða til þess fallið að vernda fólk fyrir misnotkun. Það er hins vegar það sem núgildandi 19. aldar löggjöf um bann við klámi gerir, nánar tiltekið 210. gr. almennra hegningarlaga. Klám er umdeilt, forboðið viðfangsefni, en við verðum að sýna að við höfum þroska til að geta tekið upplýsta umræðu um það þegar réttindi borgaranna og jafnvel fórnarlamba misnotkunar eru í húfi.