fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegur forseti. Í þessari ræðu minni vík ég að nokkrum stórum áherslumálum ríkisstjórnarinnar á verksviði dómsmálaráðuneytisins fremur en að fjalla um alla málaflokka ráðuneytisins enda eru þeim gerð góð skil í þeirri fjármálaáætlun sem fyrir liggur og er hér til umfjöllunar.
Á starfstíma þessarar ríkisstjórnar hefur höfuðáhersla verið lögð á að efla löggæsluna í landinu. Fjárframlög til lögreglunnar eru rúmir 17 milljarðar kr. á þessu ári og hafa verið aukin um rúma 6 milljarða kr. á undanförnum fimm árum. Þessi auknu framlög eru m.a. vegna styrkingar landamæravörslu á grundvelli Schengen-samstarfsins og aukins álags vegna fjölgunar ferðamanna. Við höfum lagt aukna fjármuni í önnur mikilvæg málefni á borð við meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu og aðgerðir gegn peningaþvætti og skipulagðri glæpastarfsemi.
Varðandi síðastnefnda þáttinn vil ég sérstaklega geta þess að undir forystu embættis ríkislögreglustjóra hefur nýlega verið skipaður sérstakur stýrihópur sem ætlað er að samhæfa vinnu lögreglunnar í sérstöku átaksverkefni gegn skipulagðri brotastarfsemi. Á vegum stýrihópsins hefur verið komið á fót aðgerða- og rannsóknahópi, þvert á einstök lögregluembætti, sem ætlað er að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum og rannsóknum og fylgja eftir málum sem tengjast slíkri brotastarfsemi. Í hópnum eru lögreglumenn frá stærstu lögregluembættunum og munu þeir hafa yfir að ráða bæði fjármunum og búnaði sem nauðsynlegur er til verksins. Stýrihópnum er einnig ætlað að efla samvinnu lögreglu við önnur stjórnvöld sem hafa með höndum verkefni sem kunna að tengjast þessari vinnu. Skipuleg brotastarfsemi hefur ýmsar birtingarmyndir óháð umdæmum og/eða landamærum og mismunandi stjórnvöld kunna að hafa með höndum verkefni sem tengjast málaflokknum. Af þeim sökum er brýnt að lögreglan leggist á eitt í öllum aðgerðum sínum. Ég bind vonir við þetta samstarfsverkefni og það markar ákveðið framhald af stofnun lögregluráðs um síðustu áramót sem ætlað var að stuðla að auknu samstarfi og einingu lögreglunnar þvert á einstök lögregluembætti. Lögreglan verður í auknum mæli að koma fram sem ein samhent heild og ég tel að með auknu samstarfi sé ekki aðeins verið að nýta fjármuni betur heldur er aukið samstarf mikilvægt til að gera lögreglunni kleift að taka að sér sífellt flóknari og erfiðari viðfangsefni.
Virðulegi forseti. Fjármálaáætlanir eru stefnumarkandi áætlanir um hvernig ráðuneytin hyggjast verja fjárheimildum málefnasviða sinna með sem árangursríkustum hætti fyrir samfélagið. Ég hef hér að framan greint frá stórauknum framlögum til lögreglunnar og haldið verður áfram á þeirri braut að efla löggæsluna á næstu árum. Af öðrum stórum verkefnum á vegum ráðuneytisins í tíð þessarar fjármálaáætlunar vil ég nefna 13,6 millj. kr. hækkun framlags til að mæta stofnkostnaði við byggingu sameiginlegs húsnæðis fyrir alla viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða húsnæði fyrir ríkislögreglustjóra, lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Landhelgisgæsluna, Tollgæslu Íslands, Neyðarlínuna, Slysavarnafélagið Landsbjörg og yfirstjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Þetta getur orðið allt að 26.000 m² húsnæði og á móti þessum framlögum hliðrast einnig fjárveiting til þyrlukaupa sem falla niður á áætlunartímabilinu. Gert er ráð fyrir um 10 milljörðum kr. til verkefnisins. Einnig er gert ráð fyrir tímabundnu 150 millj. kr. framlagi til þriggja ára eflingar björgunarskipaflota Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þetta sameiginlega húsnæði fyrir alla viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu horfir til aukins samrekstur og hagræðingar viðkomandi stofnana og samtaka. Sú starfsemi sem nú er rekin í björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð er í litlum og óhagkvæmum einingum og starfsstöðvar annarra stofnana og embætta eru í húsnæði sem er óhagkvæmt og hentar illa af margvíslegum ástæðum. Í nýju og sameiginlegu húsnæði verður unnt að samnýta margvíslega stoðþjónustu og einnig aðra þætti eins og æfingaaðstöðu, bílaaðstöðu, munageymslur og þannig mætti áfram telja.
Þrátt fyrir frestun á þremur nýjum þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna eru í gildi nýlegir leigusamningar um tvær mun nýrri og öflugri leiguþyrlur. Ásamt því er fyrirhugað að bæta við þeirri þriðju en með nýrri þyrlum og fjölgun þyrluáhafna hefur viðbragðsgeta aukist og stofnuninni er gert betur kleift að sinna eftirlitshlutverki sínu. Þá er gert ráð fyrir að flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli verði stækkað og núverandi viðbyggingar rifnar þannig að skýlin rúmi viðhald og geymslu og núverandi og framtíðarflugflota Landhelgisgæslunnar.
Sem dómsmálaráðherra hef ég lagt ríka áherslu á innleiðingu rafrænna lausna, t.d. hjá sýslumannsembættunum þar sem brýnt er að bæta þjónustu fjölskyldumála við þinglýsingar og aðra afgreiðslu opinberra skjala. Tækninni fleygir ört fram á meðan stjórnsýsluafgreiðsla embættanna hefur setið eftir og að því þarf markvisst að vinna og sjá árangur erfiðis á næstu mánuðum. Það hefur verið unnið við verkefni um rafræna réttarvörslugátt í ráðuneytinu síðustu misseri og nú er svo komið að fyrsta útgáfa lausnarinnar verður sett í loftið í lok þessa árs. Hér er um að ræða hluta af verkefninu Stafrænt Ísland sem er eitt af áhersluatriðum fjárlagafrumvarpsins.
Virðulegi forseti. Hér hefði verið hægt að fjalla í löngu máli um þau fjölmörgu verkefni sem féllu undir málaflokka ráðuneytisins en ég hef reynt að stikla á stóru um nokkur af verkefnunum sem eru viðfangsefni mín nú um stundir. Í öllum þessum verkefnum og málaflokkum er mikilvægt að hafa hugfast að stjórnsýslan er til fyrir fólkið en ekki öfugt. Við viljum einfalda líf almennings. Við viljum treysta undirstöður löggæslunnar og allra viðbragðsaðila almannavarna eins sýnt hefur verið síðustu mánuði, efla og bæta þjónustu og leggja áherslu á afköst og skilvirkni, meiri samvinnu stofnana (Forseti hringir.) og embætta og betri nýtingu fjármuna. Á sama tíma gerum við rekstur ríkisins eins hagkvæman og mögulegt er þegar til lengri tíma er litið og drögum úr kostnaði almennings sem þarf á þjónustunni að halda.