151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[11:09]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég biðst afsökunar á því að hafa ekki tilkynnt þessa breytingu fyrr. Ég veit af eigin reynslu að það er ekki þægilegt að fá breytingu í púltið með engum fyrirvara. Mig langar að þakka ráðherra fyrir inngang hennar og mig langar að spyrja hana aðeins frekar út í atriði sem ég spurði reyndar um fyrir nokkrum dögum. Það eru málefni þeirra sem bíða hér og hafa óskað eftir alþjóðlegri vernd. Þessi liður er á fjárlögum um 3 milljarðar kr. sem er allmikil upphæð. Hæstv. ráðherra gaf til kynna í svari sínu við mig um daginn að hún hefði hug á því að koma fyrir föstum íverustað fyrir fólk sem er hér í þessu skyni, fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, til þess að þeir séu í öruggu umhverfi og séu ekki hér úti um allt og jafnvel í felum hér og þar um þjóðfélagið. Spurningin er hvort ráðherra ætli sér að gera þetta og hvort hún geti nefnt okkur dæmi um hvernig þessu sé hagað annars staðar í nágrannaríkjum. Að auki langar mig til að spyrja ráðherra hvort hennar undirstofnanir séu að kanna með einhverjum hætti hvort hér á landi leynist óprúttnir aðilar sem hafi hag af því að flytja fólk í þessum ömurlegu aðstæðum til Íslands, sem er auðvitað ekkert annað en mansal. Það hefur aðeins flogið fyrir að hér séu aðilar að stunda innflutning á fólki í neyð. Ég segi aftur, hæstv. ráðherra: Það er ekkert nema mansal og mannfyrirlitning og mig langar að vita hvort undirstofnanir ráðherrans séu að gera eitthvað í því að kanna þessi mál.