151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[11:12]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Hér fyrir örfáum dögum svaraði ég fyrirspurn hv. þingmanns með því að vísa til þess hvað gert er í öðrum löndum en ekki það að slíkt sé á minni þingmálaskrá eða í vinnslu í ráðuneytinu. Ég sagði að slíkt verklag væri alltaf í skoðun, hvernig þeim þvingunarráðstöfunum væri háttað sem tryggðar eru við framkvæmd ákvörðunar. Hægt er að kynna sér það í 105. gr. laga um útlendinga hvaða ráðstafanir lögreglan hefur, þar á meðal ýmsar ákvarðanir um að fólk tilkynni sig, haldi sig á ákveðnum svæðum og síðan eru það gæsluvarðhaldsúrskurðir o.fl.

Það er afar skýrt í útlendingalöggjöfinni hvernig þetta er gert í dag. Verkefni okkar, og það sem kemur fram í fjármálaáætluninni, er að reyna að greina betur útgjöld til málaflokksins, sem hafa snaraukist síðustu ár, til þess að geta tekið betur á móti því fólki sem hingað kemur, til þess að geta fækkað fólki sem er í þjónustu í hvert skipti og er að bíða eftir úrlausn sinna mála svo að málin gangi betur fyrir sig. Það er auðvitað stóra verkefnið. Við vitum aldrei hve margir leita hingað á hverju ári og kerfið okkar verður að vera búið undir þann fjölda með því að svara hratt þeim aðilum sem fá neikvæða niðurstöðu og þurfa ekki að fá vernd og líka að svara hratt þeim sem þurfa á vernd að halda svo að þeir geti hafið árangursríka aðlögun að samfélaginu fyrr. Þetta er verkefnið fram undan, að kerfið okkar sé bæði sveigjanlegra og skilvirkara. Við sjáum það auðvitað í þessari fjármálaáætlun, ef við berum hana saman við aðrar, að kostnaðurinn hefur rokið upp. Varðandi það sem hv. þingmaður kemur hér inn á í lokin þá er mansal hluti af skipulagðri glæpastarfsemi sem ég fór vel yfir áðan og er sérstaklega verið að vinna að.