fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegi forseti. Ég verð að vera ósammála hv. þingmanni um að löggæslan hafi drabbast niður á höfuðborgarsvæðinu. Löggæslan er bara öðruvísi en hún var fyrir mörgum árum, það er ekki hægt að bera það saman. Við höfðum áður lögreglumenn hér og þar á vettvangi en nú höfum við fjölgað stórlega í ákveðnum deildum eins og í kynferðisbrotadeild og í netglæpastarfsemi. Löggæsla er að breytast og ekki er hægt að bera saman epli og appelsínur þegar við tölum um lögreglu frá því fyrir 20 árum og núna. Verkefni lögreglunnar, forsendur hennar og hvernig nútímalöggæsla er, eru bara allt önnur en fyrir nokkrum árum. Við höfum stóraukið fjármuni til lögreglunnar, um 6 milljarða á síðustu fimm árum, og þá fjármuni þarf einmitt að nýta vel. Það hefur verið forgangsraðað í aukna landamæragæslu, í skipulagða brotastarfsemi, í kynferðisbrot, vegna fjölgunar ferðamanna og í hálendisgæslu — það eru allt nýjar áskoranir sem mikilvægt er að lögreglan okkar sé í stakk búin til að sinna en ekki einungis þessi almenna löggæsla á götum úti sem hv. þingmaður talar um eins og það sé eina löggæslan sem skipti máli.
Af því að hv. þingmaður kemur inn á uppbyggingu á nýju skipulagi lögreglunnar þá er það ekki þannig að verið sé að brjóta upp og breyta öllu því skipulagi. Ég hef tilkynnt að það eigi að efla eftirlit með lögreglu og breyta einhverjum þáttum í lögreglulögunum en það er enginn að brjóta upp allt skipulag lögreglunnar heldur höfum við verið að greina verkefni embættis ríkislögreglustjóra. Þar var Víðir Reynisson fengin inn í byrjun árs til að greina þau verkefni og það er verið að koma nýju skipulagi á embættið, hvernig því er stjórnað, hvaða verkefni eru þar undir og áframhaldandi skoðun á því hvernig við getum nýtt fjármuni sem best í lögreglunni og eflt hana á öllum þessum stöðum. Við viljum að lögreglan á Íslandi sé gríðarlega góð á öllum þessum sviðum löggæslunnar og þá er þar inni öll þessi sérstaka og nýja þjónusta sem lögreglan þarf að vera í stakk búin til að sinna og við höfum eflt í þessari ríkisstjórn.