151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[11:23]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Seinni spurning mín er á svipuðum slóðum og spurningar hv. þingmanns Miðflokksins áðan, þ.e. mig langar að víkja örlítið að málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, hælisleitenda. Ég skildi ráðherra svo áðan að hún hefði í svari sínu um daginn einungis verið að lýsa því hvernig háttað væri högum þessa fólks í nágrannalöndum þar sem starfræktar hafa verið sérstakar flóttamannabúðir, það er ekki hægt að kalla það annað, hælisleitendabúðir; að hún hefði einungis verið að lýsa því hvernig þessu er háttað þar en alls ekki verið að segja að til standi að setja slíkar búðir á fót hér á landi. Það er fagnaðarefni að það standi ekki til og ég tel raunar brýnt að aðbúnaður þess fólks sem hingað leitar af mörgum augljósum ástæðum sé bættur. Framlög til þessa málaflokks umsækjenda um alþjóðlega vernd standa hins vegar í stað. Ef ekki á að reyna að fá meiri hagkvæmni með starfrækslu slíkra búða þá vaknar óneitanlega sú spurning hvernig taka eigi á móti fleirum, eins og ríkisstjórnin hefur lýst yfir að til standi að gera, og hvernig hægt verður að taka betur á móti fleirum ef ekki á að setja meiri peninga í málaflokkinn. Og það vekur athygli að það er aðeins verið að hækka um 80 milljónir á milli áranna 2000 og 2021.