151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[11:25]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég ítreka að það sem ég vísaði til, um framkvæmd allra Evrópuríkja og Norðurlanda, er framkvæmd tilskipunar Evrópusambandsins sem er brottvísunartilskipunin svokallaða, um búsetuúrræði þegar öll önnur vægari úrræði eru tæmd. Það hefur ekki verið lögfest hér og er ekki á þingmálaskrá en er samt sem áður hluti af því Schengen-regluverki sem við höfum innleitt og höfum skuldbundið okkur til að miða við. En við erum auðvitað alltaf að skoða hvernig við getum gert hlutina betur. Ein af þeim úrbótum sem þörf er á að fara í varðar börn á flótta, þá sérstaklega fylgdarlaus börn, hvernig við getum gert þá hluti betur. Sú vinna er á lokametrunum og hefur staðið lengi yfir í ráðuneytinu.

Varðandi fjárlög og fjármálaáætlun um þessi mál verður auðvitað að horfa aðeins til baka. Bara fyrir sex árum kostaði málaflokkurinn um 600 milljónir í heild sinni en nú nemur kostnaðurinn um 4 milljörðum. Við verðum að átta okkur á því að við þurfum að nýta þessa fjármuni betur og ganga út frá því að þeir sem þurfa vernd fái vernd í kerfinu okkar. Það skiptir ekki máli hversu margir koma, þeim sem þurfa vernd, þeim sem falla undir þá skilgreiningu hverju sinni, er veitt vernd á Íslandi. Þannig virkar kerfið okkar. Við þurfum að vera tilbúin í sveigjanleika og búa til kerfi sem einmitt veitir þeim vernd hraðar sem þurfa á henni að halda en svarar líka neikvæðri niðurstöðu hraðar. Við þurfum að geta gefið þeim meira rými sem þurfa á vernd að halda og þau þurfa að fá svör fyrr í kerfinu okkar.

Það er algerlega ljóst að hælisliðurinn, sem hefur verið tekinn frá Útlendingastofnun og er sérstaklega skilgreindur, hefur hækkað og þarf alltaf að hækka í fjáraukalögum í takt við aukna þjónustu. Við sjáum að á þessu ári og á síðasta ári er þjónustan meiri en gert hafði verið ráð fyrir þar sem fleiri aðilar eru að bíða eftir niðurstöðu. Það eru auðvitað þeir fjármunir sem við viljum reyna að minnka. Við viljum að fólk fái svörin sín fyrr svo að fjármunirnir geti farið á rétta staði frekar en að við séum einungis að verja þeim í þjónustu við þá sem eru að bíða eftir að fá niðurstöðu úr kerfinu okkar.