fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Aðeins út af þessari umræðu þó að hún sé ekki það sem ég ætlaði að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra út í. Mig langar bara að segja að í þessum málaflokki finnst mér gríðarlega mikilvægt að við lítum til mannúðar og komum fram við fólk af virðingu. Við eigum ekki að horfa til þeirra landa sem hafa gengið fram með offorsi og vanvirðingu við fólk í gríðarlega erfiðri stöðu.
En, herra forseti, það sem mig langar að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra um er það sem tengist málefnasviði 9, sem er almanna- og réttaröryggi. Þetta er einn af þeim málaflokkum þar sem kemur fram í fjármálaáætlun að breyting á fjárveitingum til verkefnisins sé innan ramma. Þetta getur fallið svolítið á milli skips og bryggju í umræðunni þar sem hér er hvorki um hækkun eða lækkun á fjárframlögum að ræða. Það þýðir þó ekki að ekki sé verið að vinna í málunum og þýðir auðvitað að málin eru á dagskrá og að málin eru á fjárlögum. Vegna þess að það var talað um starfsemi lögreglunnar þá langar mig að bæta því við að mikilvægt er að í námi lögreglumanna sé m.a. fjallað um rasisma og birtingarmyndir útlendingaandúðar á Íslandi svo og aðstæður fatlaðs fólks. Það þarf að taka mið af því í lögreglunáminu. Það er fjallað um það í fjármálaáætlun að ríkissaksóknari haldi námskeið og málstofur fyrir ákærendur til að auka gæði ákæruvaldsstarfa. Mig langar aðeins að biðja hæstv. ráðherra um að fara yfir það hvernig að þeim málum sé staðið. Þetta er eitt af því sem er innan fjárlagaramma ráðuneytisins en er engu að síður verið að vinna að og við höfum verið að fjalla um þetta hér í mörg ár, m.a. vegna mála sem komu upp sem tengdust ofbeldi gegn fötluðum konum.