151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[11:32]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og tel að það sé mjög mikilvægt að við fylgjumst með því hvort þær fjárheimildir sem verið er að setja í þetta nægi og hvort þær breytingar sem verið er að gera og með breyttu verklagi jafnvel dragi það fram að á einhverjum stöðum þurfi enn frekar að auka í þegar kemur að þessum málum. Við erum vonandi öll sammála um það að þegar kemur að til að mynda kynferðisbrotum þá sé öll málsmeðferðin, bæði frá hendi lögreglunnar og ákæruaðila, með sem allra besta móti.

Það er í fjármálaáætlun fjallað um stöðuna og viðmiðin varðandi hlutfall þeirra sem hafa verið beittir kynferðisofbeldi og tilkynna það til lögreglu, en það liggja ekki mælingar fyrir fyrir árið 2019. Getur hæstv. ráðherra aðeins útskýrt af hverju þessar mælingar liggja ekki fyrir? Það er mjög mikilvægt að við höfum þær vegna þess að viðmiðin ganga út á að það séu fleiri sem tilkynni til lögreglu. Og svo hins vegar, vegna þess að það kemur einnig fram í áætluninni að dómsmálaráðuneytið óski reglulega eftir gögnum um innleiðingu aðgerðaáætlunar sem varða rannsóknir og saksókn kynferðisbrota, hvort hæstv. ráðherra hafi íhugað það hvernig (Forseti hringir.) sé hægt að koma þeim ábendingum og gögnum sem ráðuneytið fær í hendurnar til okkar þingmanna svo að við getum frekar fylgst með í þessum málaflokki.