151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[11:34]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og tek undir að við þurfum auðvitað að skoða þær fjárheimildir sem fara í þennan málaflokk og ekki síst nýta hann betur og að hann fylgi þeirri þróun sem við sjáum í löggæslumálum eins og öðrum. Varðandi að það vanti prósentutölu fyrir 2019 þá bind ég vonir við að hún liggi fyrir fljótlega. Það er verið að breyta og efla skráningardeildina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu svo að þetta liggi hraðar fyrir og við getum auðveldar borið saman tölur og haft yfirlit yfir þau mál sem eru í réttarvörslukerfinu okkar. Þar mun rafræn réttarvörslugátt, sem fjallað er sérstaklega um í fjármálaáætluninni, skipta sköpum. Ég bind þess vegna vonir við að þessi tala bæði komi fram fljótlega og að hún hækki. Við sjáum að aðeins 7% kynferðisbrota voru tilkynnt 2018 og markmiðið er mjög skýrt: Að talan hækki á næstu árum. Við í dómsmálaráðuneytinu köllum reglulega eftir gögnum um aðgerðaáætlunina og þá ekki síst hvað megi gera betur og hvernig þróunin hafi verið. Má nefna að það er öðruvísi tilkynnt um það ef mál fellur niður, ekki lengur aðeins með bréfi, þegar kynferðisbrot hefur verið kært. Hvað varðar verkefni fram undan þá er eitt þingmál á þingmálaskrá minni um stöðu brotaþola þar sem við erum að hnykkja á ýmsum atriðum til að styrkja stöðu brotaþola í slíkum málum. Ég fylgi því fast eftir og það er algerlega sjálfsagt að upplýsa þingið betur um þau gögn sem ég hef kallað eftir og stöðu aðgerðaáætlunarinnar og svo auðvitað líka um framhaldið og þær tölur sem síðan berast um stöðu tilkynntra brota.