fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegi forseti. Ég var að reyna að hlera svar við þessari spurningu í svörum hæstv. ráðherra og annarra hv. þingmanna. En núna lendi ég í því sama, mér finnst ég ekki fá svar. Stendur þá ekki til að styrkja Útlendingastofnun með stórauknu fjármagni til þess að koma til móts við þennan eilífðarvanda sem hefur verið hér, alla vega frá 2013 þegar ég steig fyrst fæti hingað inn sem þingmaður? Útlendingastofnun þarf að hafa nóg starfsfólk með nógu há laun til að þar sé hægt að byggja upp þekkingu og reynslu með lægri starfsmannaveltu og þess háttar. Það gefur augaleið, og það vita það allir sem þekkja þennan málaflokk vel, að viðvarandi krísuástand er í gangi og hefur verið árum saman. Það hefur reyndar varað svo lengi að það telst eðlilegt og alltaf er verið að reyna að takast á við einstaka aukningu frá hinu eða þessu landinu, eða bregðast við þessum eða hinum aðstæðunum, með því að gera lagabreytingar til að auka skilvirkni gagnvart því tiltekna vandamáli á þeim tiltekna tíma. Lýsir sú staða sem við erum í núna ekki nákvæmlega því að sú aðferð virkar ekki? Krísuástandið heldur áfram.
Jú, jú, hæstv. ráðherra getur alveg gortað af einhverjum tölum sem hafa lækkað seinustu árin en fólk bíður enn í meira en ár eftir niðurstöðu við frekar einföldum umsóknum hjá Útlendingastofnun. Það er fáránlegt, virðulegi forseti, en við erum einhvern veginn orðin vön því. Nú fara milljarðar í málaflokkinn sem allir kvarta undan, hvort sem þeir vilja meiri mannúð eða minni í útlendingamálum. Þetta er sóun, virðulegi forseti, vegna þess að fólk í þessari stöðu getur tekið svo lítinn þátt í samfélaginu, fyrir utan að vita mjög lítið um framtíðarhorfur sínar eða hvar það verður að byggja upp sína framtíð. Það er sóun. Hægt er að minnka þá sóun með því að efla Útlendingastofnun. Því spyr ég aftur hvort það standi þá ekki til. Ég skil ekki svar hæstv. ráðherra á þann veg að svo sé.