fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegur forseti. Við höfum eflt þennan málaflokk, ef við lítum bara til fjármuna, frá því fyrir sex árum, úr 600 milljónum í 4 milljarða. Við höfum sérstaklega tekið út liðinn sem fjallar um alþjóðlega vernd til að geta fækkað og fjölgað starfsfólki eftir þörfum, til að hafa kerfið sveigjanlegra, til að geta ráðið við þann fjölda sem kemur hingað hverju sinni, sem er mjög misjafnt milli ára og mánaða. Það má nefna að meðalbiðtíminn hér er styttri en í löndunum í kringum okkur. Við gerum meiri kröfur á kerfið okkar með skýrum tímamörkum. Ef kerfið ræður ekki við að svara einstaklingum innan ákveðins tíma veitum við mannúðarleyfi. Það eru frestir sem þekkjast ekki í kringum okkur af því að við gerum ríkar kröfur á kerfið okkar um að svara málum vel og snemma. Við erum með 10–12 mánaða frest og 16–18 mánaða frest í ákveðnum málum. Flest mál eru kláruð löngu áður en sá frestur líður, löngu áður. Mörg mál klárast á fjórum til 17 dögum í kerfinu okkar. Önnur mál klárast kannski á þrem til fjórum mánuðum. Þá erum við sérstaklega að tala um Dyflinnar- og verndarmál og síðan eru það þessi stóru efnismeðferðarmál sem taka lengstan tíma og eru að klárast á fleiri mánuðum en meðaltíminn hjá Útlendingastofnun er þó langt innan við ár.
Ég tek hjartanlega undir það með hv. þingmanni að við þurfum að gera kerfið skilvirkara fyrir fólk sem sækir um. Það er markmiðið með þessum breytingum af því að í því felst mannúð.