151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[11:45]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Herra forseti. Ég ætla að bætast í hóp þeirra sem hafa rætt hér um málsmeðferðartíma sem hefur auðvitað verið mjög í deiglunni í þessum sal og í allri almennri umræðu. Þetta orð, málsmeðferðartími, heyrist oft í samhengi við aðstæður fjölskyldna sem hafa komið hingað á flótta eða til að leita sér að betra lífi. Öll held ég að við skiljum hversu biðin eftir svari sem varðar alla framtíð fólks reynir á. Óvissa, óöryggi og endalaus bið. En ég vil að málsmeðferðartími komist líka raunverulega á dagskrá í öðrum málaflokkum en útlendingapólitík. Það hefur vantað upp á að stjórnvöld hafi staðið nægilega vörð um réttarkerfið að þessu leyti, kerfið sem fæst t.d. við kynferðisbrotamál. Þessi vandi vil ég leyfa mér að segja á í sjálfu sér við um alla brotaflokka sem þar eru til meðferðar. Málsmeðferðartími þar hefur sömu áhrif á fólk sem bíður eftir svari. Kona sem kærir nauðgun fær ekki niðurstöðu um hvort málið fari fyrir dóm fyrr en ári seinna eða jafnvel tveimur árum seinna. Óöryggi, kvíði og endalaus bið. Það sama gildir um barn sem verður fyrir þeim ljótustu brotum sem við getum hugsað okkur. Það tekur svo aftur við þegar veita á börnum meðferð í Barnahúsi til að vinna úr því áfalli sem ofbeldið er. Það er margra mánaða bið í dag eftir að barn komist að. Það er langur tími í lífi barns.

Dómar í alvarlegum kynferðisbrotum eru mildaðir vegna þess að málsmeðferðartíminn hefur verið svo langur. Þetta gerist aftur og aftur. Þessi mikla bið hefur margvíslegar afleiðingar. Samt eru þessi mál í forgangi innan kerfisins. Þar vinnur fólk sem leggur sig fram um að vinna eins hratt og mögulegt er án þess að það bitni á gæðum málsmeðferðar. En við horfum upp á það að dómar í alvarlegum sakamálum, fyrir kynferðisbrot, eru mildaðir vegna málsmeðferðartímans.

Ég spyr hæstv. dómsmálaráðherra hvort við séum að komast á þann stað að fara að tala um meira en markmið, (Forseti hringir.) hvort við séum ekki að fara að auka enn frekar í almenna löggæslu, hjá ákæruvaldinu og hjá dómstólum, til þess að koma í veg fyrir þessa stöðu.