fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að ræða málsmeðferðartíma í þessum málum því að það er ekki síður mikilvægt að stytta hann, án þess að það fari gegn þeirri rannsóknarskyldu sem liggur fyrir í þessum málum. En við höfum auðvitað verið að stórefla meðferð kynferðisbrotamála í kerfinu, lið fyrir lið, öllu kerfinu síðustu ár. Við höfum sett aukið fé til rannsóknardeilda allra lögregluembætta þar sem allir þeir auknu fjármunir í þessar deildir voru settir í stöðugildi til þess einmitt að ráðast á þennan langa málsmeðferðartíma.
Ég bind líka vonir við að rafræna réttarvörslugáttin ýti undir það að flýta fyrir málum af því að hún gerir hluti einfaldari, hún gerir aðgang að gögnum einfaldari. Þetta styttir alla ferla kerfisins. Með þeim hætti ættum við líka að sjá að það skapist rými fyrir aðra til að sinna þessum þungu málum þegar við erum t.d. farin að sjá alla gæsluvarðhaldsúrskurði landsins gerast rafrænt og fleira í þeim dúr. Þannig að ég held að við getum séð miklar breytingar í þessu með rafrænni þjónustu eins og svo mörgu öðru og eins og þessi ríkisstjórn hefur lagt svo ríka áherslu á.