151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:04]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U):

Virðulegur forseti. Vegna þess að hæstv. ráðherra sagði að það væri ekki rétt að fjárheimildir lækkuðu til Persónuverndar, þá er það bara nokkuð sem ég les upp úr fjárlagafrumvarpinu. Með leyfi forseta:

„Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2021 er áætluð 290,1 millj. kr. og lækkar um 14,9 millj. kr. frá gildandi fjárlögum …“

— Lækkar. Þetta er ekki mín orð. Þetta eru orð ráðherrans. En ég ætlaði nú ekki að dvelja við þetta.

Mig langaði aðeins að ræða útlendingamál, vegna þess að oft er talað um að málefni hælisleitenda og fólks á flótta yfirskyggi gjarnan aðra hluta málaflokksins innan Útlendingastofnunar. Heyrist t.d. oft nefnt þegar fólk er að mótmæla því hversu fáum umsækjendum um alþjóðlega vernd sé veitt sú vernd, að það þurfi bara að auka möguleika fólks til að koma og fá hefðbundin dvalarleyfi. Þess vegna sakna ég slíkrar umfjöllunar í kaflanum um útlendingamál, sem er á þremur síðum en aðeins með eina stutta málsgrein um umsóknir um dvalarleyfi. Þar er ekkert fjallað um einhvers konar stefnubreytingu, sem maður hefur þó heyrt ráðherrann ámálga. Er ekkert að frétta af slíkum breytingum í ráðuneytinu?

Annað sem ég sakna og sem mig langar að spyrja um varðar sjálfstæða, almenna mannréttindastofnun, sem er mjög mikilvæg réttarbót fyrir almenning sem kynnt var sem áform um lagasetningu í mars 2019. Síðan hefur ekkert frést af henni, þannig að mig langar að spyrja frétta.