151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:08]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Heimsfaraldur kórónuveiru hefur verið fyrirferðarmikill í lífi okkar undanfarna mánuði. Faraldurinn er raunar nátengdur umhverfismálum. Eftir því sem umsvif mannsins hafa þrengt að búsvæðum margra tegunda og laskað vistkerfi hefur hættan á að smitsjúkdómar á borð við Covid-19 berist úr villtum dýrum í menn aukist. Að þessu þarf að huga í allri alþjóðlegri umræðu.

Í gildandi fjármálaáætlun er gert ráð fyrir umtalsverðri innspýtingu til nýrra og aukinna verkefna á málefnasviði umhverfismála. Í þeirri fjármálaáætlun sem nú er til umræðu kemur enn frekari aukning til tiltekinna verkefna sem styður við áherslur hennar. Heildarfjárheimild málefnasviðs umhverfismála samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2021 og tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2021–2025 nemur 24,3 milljörðum kr. á árinu 2021. Þannig hafa framlög úr ríkissjóði til málefnasviðs umhverfismála aukist um 47% á verðlagi ársins 2020, á tímabilinu 2017 til og með árinu 2021. Það hefur gerst á vakt Vinstri grænna. Gert er ráð fyrir að heildarfjárheimild málefnasviðsins verði 25,3 milljarðar kr. á árinu 2025 sem er 23,1% aukning miðað við fjárlög 2020.

Fjármunir til loftslagsmála munu hafa aukist um 13,9 milljarða kr. frá 2017 til 2025, að meðtalinni þeirri 3 milljarða kr. aukningu sem birtist í þeirri fjármálaáætlun sem við ræðum nú og er til komin vegna fjárfestingarátaks ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins. Rétt er að benda á að í gildandi áætlun er gert ráð fyrir 300 milljóna kr. aukningu í árlegu framlagi til loftslagsmála 2021 og 2022 og 500 millj. kr. árið 2023. Auknu fjármagni til loftslagsmála er ætlað að hraða orkuskiptum í samgöngum og haftengdri starfsemi, stuðla að nýsköpun og aukinni kolefnisbindingu með meira umfangi uppgræðslu, endurheimt vistkerfa og nýskógrækt.

Fjármunum til fjölbreyttra verkefna í þágu náttúruverndar og sjálfbærrar nýtingar verður varið til áframhaldandi uppbyggingar innviða og landvörslu um land allt en 10,5 milljörðum kr. hefur verið varið aukalega til náttúruverndar í tíð þessarar ríkisstjórnar. Til þess að fylgja eftir áformum stjórnvalda um stofnun hálendisþjóðgarðs verður tæpum 3,3 milljörðum kr. varið til hans sérstaklega á árunum 2021–2025, t.d. með uppbyggingu innviða og rekstri.

Gert er ráð fyrir að á tímabilinu verði fjárheimildir til ofanflóðavarna auknar um alls 8 milljarða kr. með það að markmiði að uppbyggingu þeirra verði lokið árið 2030. Á næsta ári er ráðgert að verja um 2,7 milljörðum kr. til verkefnisins.

Aukning til grænnar nýsköpunar í þágu hringrásarhagkerfisins nemur 1,7 milljörðum kr. á tímabilinu. Er aukningin liður í sérstöku fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins. Virkni hringrásarhagkerfisins felst í ábyrgri framleiðslu og neyslu, að draga úr sóun með því að koma í veg fyrir myndun úrgangs og stuðla að bættri meðhöndlun hans með endurnotkun og endurvinnslu. Á næsta ári er ráðgert að ráðstafa 500 milljónum kr. til hringrásarhagkerfisins þar sem m.a. verður ráðist gegn matarsóun, plastmengun og sóun á textíl.

Kveðið er á um átak í fráveitumálum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Í þessari fjármálaáætlun er gert ráð fyrir 2,8 milljarða kr. í formi stuðnings til sveitarfélaga til þess að bæta ástand fráveitumála. Verkefnið er hluti af fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar og gert er ráð fyrir að sveitarfélög geti sótt um styrki til þess að mæta hluta kostnaðar við fráveituframkvæmdir til ársins 2030. Verkefnið var í raun hafið á þessu ári með 200 milljóna kr. fjárveitingu og á næsta ári er ráðgert að veita 800 milljónir kr. til verkefnisins.

Aukning til ýmissa annarra verkefna nemur ríflega 1,7 milljörðum kr. á tímabilinu sem hluti af fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar og er hugsað til uppbyggingar og styrkingar innviða til að auka öryggi og viðbragðstíma, m.a. með endurnýjun og uppbyggingu veðursjáa og vöktunarkerfa. Enn fremur til að styrkja starfsemi stofnana í tengslum við aðgerðir stjórnvalda vegna óveðurs í desember 2019.

Hæstv. forseti. Ég fagna þeirri athygli og umfjöllun sem umhverfis- og loftslagsmál hafa fengið í almennri umræðu undanfarin ár. Mér finnst tæplega helmingsaukning fjárframlaga úr ríkissjóði til málefnasviðsins á starfstíma þessarar ríkisstjórnar bera vott um skýra pólitíska áherslu. Hér er um brýna og þarfa forgangsröðun fjármuna að ræða.