fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hans og einnig fyrir það tækifæri að fá að eiga orðastað við hann um málefni á málefnasviði hans. Ég vil fara í nokkur mál og nefna í fyrsta lagi að á síðustu tveimur þingum hef ég lagt fram tillögu til þingsályktunar um að ráðherra kanni hagkvæmni þess að hér verði reist hátæknisorpbrennslustöð eða stöðvar. Sú tillaga hefur ekki fengið afgreiðslu í þinginu enn sem komið er. Það mál lagði ég fram í ljósi þeirrar staðreyndar að hingað til hefur langmest af því sorpi sem frá okkur kemur verið urðað og erum við þar að tala um tugþúsundir eða hundruð þúsunda tonna af sorpi á ári hverju. Það sem ekki hefur verið urðað hér hefur í einhverjum tilvikum verið sent til útlanda og er óljóst hvað verður um það þar, hvort það er endurunnið, urðað eða brennt eða jafnvel sent til annarra landa.
Í ljósi þessa tel ég brýnt að könnuð verði hagkvæmni þess að við sjáum um okkar sorp sjálf og hættum urðun þess, endurvinnum það eins og unnt er og brennum það sem út af stendur á eins umhverfisvænan hátt og unnt er. Þó að þessi tillaga mín um hátæknisorpbrennslustöð hér á landi hafi ekki fengið afgreiðslu á þinginu vil ég nota þetta tækifæri og eiga orðastað við hæstv. umhverfisráðherra til að spyrja um afstöðu hans til þessa máls, til þeirrar tillögu minnar um að kanna hagkvæmni þess að reisa hér á landi sorpbrennslustöð sem verði í stakk búin til að brenna sorp okkar hér á landi á eins umhverfisvænan hátt og unnt er.