fjármálaáætlun 2021--2025.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og umræðuna sem við eigum hér oft. Því er til að svara að ég hef látið vinna eða það er verið að vinna núna fyrir ráðuneytið úttekt á möguleikum þess að setja hér á fót brennslustöð, þ.e. ef við nálgumst þetta fyrst og fremst út frá því hver þörfin verður þegar við erum búin að ná markmiðum okkar um endurvinnslu, sem eiga að vera um 50% í ár og 55% árið 2025, en við höfum ekki náð þeim markmiðum enn. Ef við horfum til framtíðar og við gerum ráð fyrir að við náum þessum markmiðum, hver er þá þörfin fyrir slíka sorpbrennslustöð? Þetta þarf líka að skoða í samhengi við brennslu á dýrahræjum sem falla til víða um land og ég á von á því að bráðlega verði niðurstaða þessarar skýrslu komin. Það er alveg ljóst að brennslustöðvar eru dýrar og óvíst hvort sveitarfélögin myndu ráða við það ein. Ef þetta myndi reynast vænlegur kostur eða eitthvað sem nauðsynlegt væri að gera þyrfti að skoða sérstaklega þann þátt.