151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:17]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir þetta svar og ég er ánægður með það að ráðuneytið og hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin ætli að skoða þessa hugmynd eða tillögu mína og séu komin langt með að kanna það. Hæstv. ráðherra segir að þetta sé spurning um hver þörfin verður. Það verður auðvitað alltaf einhver þörf fyrir sorpbrennslu. Menn tala um endurvinnslu, menn tala um að endurvinna og ég held að það sé alveg ljóst að það verður aldrei hægt að endurvinna sorp í það miklum mæli að það yrði ekki einhver úrgangur sem þyrfti að losa sig við. Ég tala fyrir brennslu á þessu, þetta er í raun og veru eldsneyti, brennsla á eldsneyti með eins umhverfisvænum hætti og unnt er.

Ég vil líka spyrja hæstv. ráðherra um árangurinn af aðgerðum í loftslagsmálum. Ríkisstjórnin leggur fram stóraukin framlög, eins og ráðherra kom inn á, til loftslagsmála og þar vil ég tala um og spyrja hæstv. ráðherra um árangurinn. Hver er árangurinn? Er hann mælanlegur? Hver eru markmiðin? Hvert ætlum við að stefna? Eins og allir vita, ég þarf kannski ekki að eyða mörgum orðum í það, erum við að fara í samgöngurnar, þ.e. bifreiðaflota landsmanna og rafbílavæða hann. Hver eru mælanleg markmið af þeirri aðgerð í samanburði við aðrar aðgerðir, eins og t.d. kolefnisbindingu? Af hverju vinnur ríkisstjórnin ekki frekar að því að binda kolefni á miklu kraftmeiri hátt en raunin er og stefnan er?

Ég hef talað fyrir aukinni skógrækt sem er eina raunhæfa aðgerðin (Forseti hringir.) til að við getum staðið við alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Það er eina raunhæfa aðgerðin til að binda kolefni (Forseti hringir.) í því magni sem nauðsynlegt er svo að við þurfum ekki að lenda í því að greiða himinháar sektir (Forseti hringir.) fyrir það að menga.