151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:20]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Hér er spurt um markmið, hvert við stefnum og árangur í loftslagsmálum og komið er sérstaklega inn á bindingu kolefnis með skógrækt. Markmið íslenskra stjórnvalda hafa verið þau að fylgja sameiginlegu markmiði Evrópusambandsins um 40% samdrátt árið 2030 miðað við árið 1990 og er aðgerðaáætlun okkar sem gefin var út núna í júní til vitnis um það að þeim árangri verði náð og gott betur. En það er alveg ljóst að kröfurnar verða hertar á komandi árum og væntanlega mun fleiri ríkjum bera skylda til að skila inn áformum um framtíðarmarkmið sín núna á þessu ári og er það farið að byrja að tínast inn til loftslagssamningsins. Ísland mun að sjálfsögðu taka þátt í því þannig að við megum gera ráð fyrir að við setjum okkur metnaðarfyllri markmið strax á þessu ári eða í upphafi hins næsta.

En síðan stefnum við náttúrlega að kolefnishlutleysi árið 2040, eins og margoft hefur komið fram. Varðandi árangur sýna bráðabirgðatölur Umhverfisstofnunar fyrir árið 2019 eða þær benda til að við séum að ná 10% samdrætti þegar kemur að úrgangsmálum. Við erum að ná 2% samdrætti þegar kemur að vegasamgöngum. Svo eru aðrir þættir sem fara upp, sumir af þeim eru tímabundnir, aðrir eru kannski meira áhyggjuefni. Okkur hefur því tekist að snúa, að mínu mati, loftslagsskútunni. Við erum að byrja að beygja inn á rétta leið, sem er mjög mikilvægt og sýnir það að árangur hefur náðst af þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til.

Varðandi bindingu kolefnis með skógrækt hefur það verið aukið jafnt og þétt á þessu kjörtímabili. En það er auðvitað (Forseti hringir.) ekki eina raunhæfa aðgerðin því að við þurfum að ráðast í aðgerðir á miklu fleiri sviðum; í orkuskiptum, matarsóun, landgræðslu, endurheimt votlendis og þar fram eftir götunum.