151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:24]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurningarnar. Ef ég byrja aðeins á loftslagsmálunum eða því sem þar var komið inn á og rætt um endurheimt landgæða, skógrækt, endurheimt votlendis o.s.frv., þá höfum við oft rætt það í þessum sal að þetta er akkúrat einn af stóru þáttunum í aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda, að takast á við að draga úr losun frá landi, hvort sem það er úr votlendi eða kemur frá illa förnu mólendi eða öðrum vistkerfum, og þá bæði með því að ráðast í aukna uppgræðslu og landgræðslu en líka með skógrækt og endurheimt votlendis. Þarna höfum við verið að stórauka framlögin á undanförnum árum og hefur orðið aukning frá því sem við lögðum upp með árið 2018 í fjármálaáætlun 2019–2023 á þessu sviði líkt og á öðrum sviðum loftslagsmálanna þannig að um munar.

Varðandi beitarmálin er það þáttur sem ég tek undir með hv. þingmanni að þarf að skoða sérstaklega og ekki síst út frá skilgreiningunni á sjálfbærri landnýtingu sem hv. þingheimur samþykkti í nýjum lögum um landgræðslu fyrir bráðum tveimur árum síðan. Það er verið að vinna að reglugerð sem skilgreinir þetta. Á sama tíma höfum við verið að byggja undir þekkingarsköpun í þessum málum, einmitt með t.d. verkefninu GróLind sem á að geta gefið okkur talsvert mikið af frekari upplýsingum til að byggja á þegar að þeim málum kemur. Ég hef greinilega allt of mikinn áhuga á akkúrat þessu og verð að fá að svara hinum spurningunum á eftir til hv. þingmanns.