151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:27]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vona að hæstv. ráðherra gefi sér tíma til að svara spurningunni varðandi ESA og mögulega EFTA-dómstólinn. En að öðru fyrst, ég ætla að byrja á einföldustu spurningunni: Getur hæstv. ráðherra fullvissað okkur um að þessi fjármálaáætlun sé í fullu samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og að þau verkefni sem þar eru séu fullfjármögnuð? Það er nefnilega svo, herra forseti, að í áætluninni eru settir fram mælikvarðar um hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum og sjávarútvegi. Hlutfallið verði 16% í samgöngum árið 2020 þrátt fyrir að stefnt sé að því að hlutfallið verði orðið 40% um 2030 samkvæmt áætluninni og að aðeins verði búið að ná 3,5% hlutfalli í sjávarútvegi og skyldri starfsemi sem er í engu samræmi við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Telur hæstv. ráðherra þessa mælikvarða ásættanlega?

Það er fjölmargt sem Covid hefur kennt okkur og m.a. það að stundum þarf einhvers konar hvata til þess að fólk breyti hegðun sinni. Telur ráðherra ekki að það hefði verið ástæða til að setja inn fleiri hvata í áætlunina, eins og t.d. hækkun kolefnisgjalds? Það hefði mátt forðast hækkaðar álögur á almenning í því samhengi með því að lækka samhliða olíugjald á bíla. Þess má geta að í Noregi voru í ágúst 52,8% nýskráningar á hreinum rafbílum en aðeins um 16,5% á Íslandi. Hver er munurinn á því sem Norðmenn eru að gera og því sem við erum að gera? Jú, herra forseti, hærri innflutningsgjöld á bensín- og dísilbílum. Telur ráðherra ekki að nú gæti verið tækifærið til að grípa til aukinna hvata til að flýta orkuskiptum í samgöngum? Þannig gætum við slegið þrjár flugur í einu höggi, hraðað orkuskiptum, minnkað innflutning bensín- og dísilbíla og sparað gjaldeyri og aukið tekjur ríkisins. Það er fyrir utan þann sparnað sem yrði á gjaldeyri við að skipta hraðar yfir í innlenda orkukosti. Hver ákvað annars að við ættum að vera eftirbátar Norðmanna? Í ljósi þess að ESB er að setja sér loftslagsmarkmið um 60% samdrátt í gróðurhúsalofttegundum, ættum við ekki að setja markið hærra?