151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:31]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka ráðherra fyrir þessa yfirferð. Mig langar að spyrja hann aðeins út í raforkuframleiðslu í landinu. Það er alveg ljóst að orkuöryggi og mat á því hefur ekki skipað þann sess sem þarf að vera. Orkuöryggi skorar hæst hjá öllum þjóðum þegar kemur að því að meta þjóðaröryggi. Það var gerð mjög svört skýrsla eftir eftir gosið í Holuhrauni og sviðsmyndir þar sýna gríðarlega mikil áhrif af eldgosi í Vatnajökli. Okkar vísindamenn spá því að það megi vænta þess að þær jarðhræringar sem eru í Vatnajökli geti leitt af sér eldgos. Sviðsmyndirnar sýna í raun mjög alvarlega ógn við samfélag, byggð og atvinnurekstur sem mun hafa alveg gríðarlega víðtæk áhrif.

Í dag öflum við 65%, og rúmlega það, allrar orku landsmanna af Þjórsársvæðinu. Þetta og það sem nýleg skýrsla frá Samorku sýnir okkur um þá orkuþörf sem verður í landinu á næstu árum, m.a. vegna orkuskipta í samgöngum og almenns vaxtar í atvinnulífi og hjá heimilum, sýnir að við þurfum á verulegri aukinni orkuframleiðslu að halda hér á næstu árum. Í ljósi þessa og þá með tilliti til þess að ráðherra hyggst leggja fram rammaáætlun í vetur, getur hann deilt þeim áhyggjum mínum að það þurfi að horfa alveg sérstaklega til þess í framkvæmdum við uppbyggingu orkumannvirkja á næstu árum í vatnsafli, einkum í jarðvarma? Síðan auðvitað í vindorku sem þarna spilar með, en er ekki eins fullkomið framleiðslutæki. Það verður að horfa til þess með sem mestri dreifingu sem víðast um land.