fjármálaáætlun 2021--2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil byrja á því að segja að í nýrri orkustefnu sem iðnaðarráðherra hefur kynnt er einmitt komið sérstaklega inn á orkuöryggi og þá ekki síst orkuöryggi almennings sem ég tel að skipti meginmáli þegar kemur að þessari umræðu, að okkur sé gert að tryggja að almenningur hafi fullnægjandi aðgengi að orku.
Varðandi orkuþörfina á næstu árum þá virðast menn ekki vera alveg sammála um hana, það er mismunandi hvað heyrist eftir því hver talar. Ég vil benda á að varðandi spurningu hv. þingmanns um dreifingu um landið að það eru atriði sem mæla með því að dreifingin sé góð um landið en ég vil horfa á þetta fyrst og fremst út frá umhverfis- og náttúruverndarsjónarmiðum og að við nýtum okkur rammaáætlun til þess að í rauninni stilla af hvar sé æskilegt að vernda gegn orkunýtingu og hvar sé leyfilegt að halda áfram að þróa orkukosti til nýtingar. Mér finnst það vera grundvallaratriði í þessu. Svo er auðvitað talsvert mikil orka nú þegar í núverandi nýtingarflokki rammaáætlunar.
Að lokum langar mig að segja að ég held að það sé áhugavert að horfa til vindorkunnar í samspili við vatnsaflið. Við þurfum hins vegar að byggja utan um það skilvirkara kerfi þegar við tökum ákvarðanir um með hvaða hætti við ætlum að nýta þá orkuauðlind.