151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:49]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessu tækifæri til að ræða málefnasviðið umhverfismál við umræðu um fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025. Það er ánægjulegt að sjá að það tekst að verja þá uppbyggingu og áætlaða fjárfestingu á þessu málefnasviði þrátt fyrir að það þrengi að núna á öllum sviðum. Eitt af því sem ég er sérstaklega ánægð með að við fylgjum eftir núna eru varnir gegn náttúruvá, ofanflóðavarnir. Þar er markmiðið fyrir málaflokkinn að tryggja fullnægjandi öryggi fyrir íbúa landsins gegn ofanflóðum. Því miður hefur á síðustu árum dregist úr hömlu að halda krafti í uppbyggingu á þessu sviði en nú er verið að hraða uppbyggingunni og stefnt er að því að ljúka 47 fyrirliggjandi ofanflóðaverkefnum fyrr en áður var áætlað. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort komin sé uppfærð áætlun fyrir allt tímabilið til að ljúka þessum 47 verkefnum og hvenær áætlað sé að þeim ljúki.

Síðan langar mig að gera annað fjárfestingarverkefni að umtalsefni, sem er stuðningur við uppbyggingu fráveitna. Það er náttúrlega mjög mikilvægt vatnsverndarmál og þar með matvælaöryggismál og umhverfisverndarmál. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, því að nú var samþykkt hér í vor að fara í þetta verkefni, hvort komin sé mynd á áætlanir sveitarfélaganna og hvernig þær samræmast fjármálaáætluninni eins og hún er lögð fram.