151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:55]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Já, ég tel að sú reynsla sem við höfum af samstarfi við náttúrustofurnar sé mjög góð. Ég hef lagt mig í líma við það að reyna að efla starfsemi þeirra á þessu kjörtímabili. Ég vil nefna í fyrsta lagi þá vöktunarsamninga sem hv. þingmaður kom inn á, sem eru við náttúrustofurnar í Bolungarvík og á Húsavík og við erum að tryggja áframhaldandi samninga við þær eftir að þeir renna út sem er á þessu eða næsta ári, held á næsta ári, ef ég man rétt. Við forgangsröðum bara í þágu þessa og þetta hefur gengið vel.

Við erum síðan að bæta í varðandi vöktunarverkefni á friðlýstum svæðum og sérstaklega þar sem álag ferðamanna er mikið. Það er verkefni sem er stýrt af Náttúrufræðistofnun Íslands en meginhlutinn af vinnunni við að vakta fer fram hjá náttúrustofunum. Þetta byrjaði í rauninni í tilraunafasa núna í sumar og er von á því að einhverjar niðurstöður liggi fyrir um það síðar í haust eða vetur upp á það hvernig við munum haga því áfram í framhaldinu. Þarna er um umtalsverðar upphæðir að ræða, um 100 milljónir munu fara í þetta allt í allt á árinu.

Svo vil ég líka nefna það, af því að hér var komið inn á strandsvæðaskipulagið, að á Austfjörðum og Vestfjörðum er það fjármagnað, verður fjármagnað í gegnum Skipulagssjóð. Við þurfum svo að sjá til ef það vantar meira upp á, ef fleiri svæði verða tekin fyrir. Það þarf eiginlega að skoða það sérstaklega.

Síðan varðandi vöktun gróðurauðlindarinnar, við setjum á næstu þremur árum stóraukið fé akkúrat í það að meta hver útblásturinn er frá illa förnu landi og mismunandi landgæðum til að geta svarað þeim spurningum betur sem við þurfum að standa skil á varðandi loftslagsmálin, ekki síst í samstarfi okkar við Evrópusambandið.