151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[12:58]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Mig langar til að byrja á að ræða við hæstv. ráðherra um mál sem fengið hefur töluverða umfjöllun síðasta klukkutímann eða svo. Ríkisstjórnin birti fyrir nokkru aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og fær hún eðlilega sitt pláss í fjármálaáætluninni og þar er margt ágætt að finna. En það sem er gagnrýnivert er að áætlunin sleppir nær alveg stærsta losunarþættinum, sem er landnotkun, þ.e. losun frá framræstu votlendi annars vegar og síðan losun frá illa förnu landi, landi sem er illa farið m.a. vegna ofbeitar.

Þarna eru stóru tölurnar í losun Íslands sem falla vissulega ekki undir Parísarsamninginn. En þetta skiptir gríðarlegu máli fyrir okkur hér ef við ætlum að standa við stóru orðin. Ég hefði viljað sjá hugmyndir ráðherra um hvernig bregðast eigi við þessu, fá meira vægi í fjármálaáætlun til næstu ára. Hvaða kerfi er verið að skoða varðandi endurheimt á votlendi og hvernig á að vernda og rækta upp þetta ónýta land?

Mig langar til að spyrja út í þennan landnýtingarþátt loftslagsáætlunarinnar, en eins og ég segi sakna ég umfjöllunar um hana í fjármálaáætlun. Það eru vissulega einhver markmið um það en mjög óljós og ekki er farið nákvæmlega í hvernig á að leysa þetta. Ég spyr um skoðun hæstv. umhverfisráðherra af hverju það gangi svona hægt, samtalið við landeigendur og bændur um þessi mál, og þá gef ég mér að það samtal sé yfir höfuð í gangi.

Hver er framtíðarsýn ráðherra og hæstv. ríkisstjórnar í þessum málum? Sér ráðherra fyrir sér að á næstu árum verði tekið af myndarbrag (Forseti hringir.) á þessum málum? Er hann ekki sammála mér í því að þessi risaþáttur, landnotkunarþátturinn í losun Íslands, sé lykilatriði ef við ætlum að sjá einhvern árangur?