fjármálaáætlun 2021--2025.
Hæstv. forseti. Nú er það svo að fallið hefur verið frá því að leggja á urðunarskatt eftir samtal formanna ríkisstjórnarflokkanna við sveitarfélögin. Mun hann því alla vega ekki koma til akkúrat á þessu þingi. Það sem ég vil segja almennt um skattlagningu sem snýr að umhverfi, svokallaða umhverfisskatta, er að þeir eru hugsaðir sem hvati til að breyta um hegðun. Ég tel þá mjög mikilvæga í því samhengi og tel að svo sé einnig um umræddan skatt sem hv. þingmaður kemur inn á. Það á líka við um aðra skatta sem tengjast því að reyna að breyta hegðun fólks í þá átt að hún verði umhverfisvænni og að starfsemin öll í samfélaginu verði með þeim hætti.