151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[13:22]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að mjög mikilvægt markmið er sett fram í stjórnarsáttmála um mat á áhrifum allra stærstu áætlana ríkisins. Reyndar er það nú svo að í nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda er líka talað um að reyna að meta áhrif af málum sem koma fyrir þingið. Það er eitthvað sem við ætlum að byrja á að vinna með í umhverfisráðuneytinu og er bara mjög spennandi. Einhvers staðar þarf að byrja líkt og þegar við byrjuðum að vinna með kynjaða fjárlagagerð, og ég held að þetta sé eitthvað sem skiptir máli þar.

Mig langar að nefna að mat á umhverfisáhrifum áætlana á að taka á loftslagsmálum, allar stærri áætlanir ríkisins fara í gegnum slíkt eins og samgönguáætlun og kerfisáætlun o.s.frv. Það sem við erum að vinna að núna í ráðuneytinu er að fara með Skipulagsstofnun í gegnum þær reglugerðir sem líta þarf til þegar umhverfismat sem þetta er unnið, einmitt til þess að hnykkja á því að þar sé horft til loftslagsmála.

Mig langar líka að nefna landsskipulagsstefnu sem Skipulagsstofnun hefur verið að vinna að undanfarin tvö ár. Ég vonast til að koma með hana fyrir þingið núna í janúar. Þar snýr einn af þremur þáttum einmitt að loftslagsmálum, þ.e. með hvaða hætti hægt sé að gefa leiðbeiningar til sveitarfélaga fyrir aðalskipulag, deiliskipulag og svæðisskipulag um loftslagsmál. Með því að fara þessa leið er náttúrlega verið að vinna að því að þessar áætlanir taki mið af loftslagsmálum. Það er því vissulega verið að vinna að þessu markmiði. En við þurfum að gera meira í þessu, ég tek undir það með hv. þingmanni, en það er verið að vinna að þessu líka.