151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[13:47]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir tækifærið að fá að ræða hér þann stóra og mikilvæga málaflokk sem heilbrigðisþjónustan er og heilbrigðismálin í heild sinni. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra svolítið út í skipulag og innviði. Á þessum tímum skiptir gríðarlega miklu máli að hugsa einmitt hvernig skipulagið nær sem best til sem flestra. Það er af mörgu að taka í heilbrigðiskerfinu, bæði til að nýta fjármunina, nýta starfsaflann og þá þekkingu sem til er sem best. Það hefur verið unnið mikið í því og það fyrir tíma Covid. Ég vil hrósa núverandi heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, fyrir það hvernig hún hefur tekið á málefnum utanspítalaþjónustu eða bráðaþjónustu utan spítala. Það sést skýrt í fjármálaáætlun á markmiðunum og áskorunum hve vel er búið að ná utan um þennan málaflokk. Það eina sem vantar er svolítið að klára verkefnið.

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að fara í tveggja ára tilraunaverkefni með sjúkraþyrlu sem mun þá færa sérhæfða heilbrigðisþjónustu út á vettvang með mjög skjótum og góðum hætti og lífsbjargandi. Ég tel að þetta sé mjög mikilvægt og sé hluti af þeim innviðum sem við eigum akkúrat að fara í núna til þess að efla heilbrigðiskerfið, þetta mun breyta skipulaginu, samhliða því að tekið yrði upp nýtt skipulag um miðstöð bráðaþjónustu sem heldur utan um þennan málaflokk. Ég held að þetta geti orðið gríðarlega mikilvægt framfaraskref, sérstaklega á tímum eins og við búum við núna.