151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[13:49]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir umræðuna um þetta og tek undir mikilvægi þess að styrkja utanspítalaþjónustuna. Eins og þingmaðurinn nefndi var lagt upp með tveggja ára tilraunaverkefni með sérútbúinni sjúkraþyrlu sem yrði staðsett á suðvesturhorninu. Fjármagn fyrir verkefnið hefur ekki enn ratað inn í fjármálaáætlunina en það er mikilvægt að vinna áfram að því að skilgreina enn betur bæði þörfina og vinna málinu framgang þannig að við séum líka tilbúin þegar aðstæður í samfélaginu breytast aftur. Vissulega hefur dregið úr þörfinni akkúrat núna meðan ferðamenn eru færri.

Ein megintillagan frá starfshópnum sem hv. þingmaður sat í, ef ég man rétt, gengur út á að stofna sérstaka miðstöð um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga sem fari með stjórn málaflokksins og hafi það hlutverk að samræma þjónustuna á landsvísu. Þetta er náttúrlega eitthvað sem er til frekari skoðunar og úrvinnslu eins og aðrar tillögur starfshópsins, það er í gangi í ráðuneytinu, en stefnt er að því að finna þeim stað í aðgerðaáætlun um heilbrigðisstefnu og í fjármálaáætlun til framtíðarinnar. En það skal alveg viðurkennast að þetta ástand sem núna er út af Covid hefur því miður tafið þessar áætlanir. En þetta er alla vega eitthvað sem ráðuneytið er með á radarnum.