fjármálaáætlun 2021--2025.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Nú er verið að fjölga sálfræðingum í heilsugæslunni, sem ég tel að sé mjög mikilvægt. Þar er líka lögð sérstök áhersla á börn. Það er áherslumál, veit ég, hjá heilbrigðisráðherra að geta samið við sálfræðinga. Stefnan er að geta gert það. En eins og staðan er núna treysti ég mér því miður ekki til að svara spurningunni með jái eða neii. Ég bið hv. þingmann um að virða það við mig. En ég ítreka að verið er að auka verulega við sálfræðiþjónustuna í heilsugæslunni, sem skiptir miklu máli, og samvinnu við skólana þegar kemur að skólahjúkrun og sálfræðingum. Við höfum náttúrlega verið að efla opinberu þjónustuna, eins og hv. þingmaður þekkir og ég fór stuttlega yfir í upphafsræðu minni. En ég hef þetta ekki lengra að sinni.