151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[13:58]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég get ekki séð að í fjármálaáætlun sé tekin inn í myndina sú uppsafnaða þörf sem þegar er til staðar í heilbrigðiskerfinu, hvað þá kostnaðurinn sem hlýst af núverandi ástandi í samfélaginu, þ.e. áhrif Covid á líf þeirra sem veikjast og nákominna og afleiðingar aðgerða ríkisstjórnarinnar við Covid. Það eru áföll, streita, óvissa vegna atvinnumissis, brottfall úr skólum vegna lokunar eða takmarkaðs aðgengis að skólastarfi, efnahagslegar hindranir vegna ákvörðunar stjórnvalda um að greiða t.d. námsfólki ekki atvinnuleysisbætur og tryggja því ekki grunnframfærslu á þessum óvissutímum, einangrun og sóttkví, áhrif á efnahag og geðheilsu fólks, aukin vímuefnaneysla, hræðsla, óvissa, afleiðingar eins og heimilisofbeldi og aukið ofbeldi almennt, sjálfsvíg og almenn vanlíðan, samfélagsleg sundrung sem leiðir af sér minni samkennd og samstöðu, sem grefur undan trausti og samfélagsþátttöku sem er grundvöllur heilbrigðs lýðræðis, fókus á faraldur, sem hefur einnig þau áhrif að draga úr getu fólks til að huga að lífsnauðsynlegum aðgerðum í loftslagsmálum, aðgerðaleysi sem eykur enn fremur á heilbrigðisvanda og möguleika okkar til þess hreinlega að lifa framtíðina af.

Það er ekki ætlun mín á neinn hátt að draga úr réttmæti aðgerða ríkisstjórnarinnar eða alvarleika Covid heldur vil ég einungis varpa ljósi á þær neikvæðu afleiðingar sem við getum áætlað út frá þeim gögnum og þeirri þekkingu sem við búum yfir eftir síðasta hrun. Þannig að ég spyr hæstv. ráðherra: Voru atriðin sem ég taldi upp tekin til greina þegar fjármagnsþörfin í heilbrigðiskerfinu næstu ár var metin? Og ef ekki, hvers vegna ekki? Hvers vegna er ekki tekið til greina á heildrænan hátt hvað sparnaður á einum stað í kerfinu kostar á öðrum? Hvað kostar það framtíðarheilbrigði þjóðarinnar að hækka ekki lífeyrisgreiðslur eða atvinnuleysisbætur þótt ekki sé nema tímabundið, að tryggja ekki grunnframfærslu nemenda og að tryggja ekki efnahagslegt öryggi (Forseti hringir.) og sveigjanleika fólks á þessum óvissutímum? Hvað verður framtíðarreikningurinn hár? (Forseti hringir.) Þeim spurningum á að svara í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) til næstu fimm ára því að án heildstæðrar sýnar á raunverulegan kostnað erum við bara að færa hann til á milli kerfa, (Forseti hringir.) í formi dálka í excel-skjali. Það er ekki ábyrg efnahagsstjórn. (Forseti hringir.)

Hæstv. ráðherra gæti líka svarað þessu út frá sínum eigin málaflokki. (Forseti hringir.) Ég veit að hann er hér fyrir heilbrigðisráðherra og getur illa svarað fyrir hana, (Forseti hringir.) en það sem sérhæfingin þarf er heildstæðari sýn.